146. löggjafarþing — 37. fundur,  1. mars 2017.

opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli.

156. mál
[17:20]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég er komin hér í seinni ræðu mína um þetta mikilvæga mál en það er að neyðarbrautin verði opnuð að nýju. Það er mikilvægt því að sjúkraflug er hluti af utanspítalaþjónustu okkar Íslendinga. Eins og fram kom í fyrri ræðu minni tökum við Framsóknarmenn, hv. þingmenn Framsóknarflokksins, sjúkraflugið inn í heilbrigðisáætlun og viljum að aðgangur að því og staða þess verði skoðuð í samhengi við gerð heilbrigðisáætlunar fyrir Ísland. Jafnframt höfum við tekið mjög alvarlega orð hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar um mikilvægi þess að sjúkraflugið verði skoðað í hv. velferðarnefnd Alþingis og munum fylgja því eftir í tengslum við þá heilbrigðisáætlun sem við leggjum hvað mesta áherslu á í störfum okkar á þessum þingvetri.

Ég kem hér upp í seinni ræðu mína því að ég ætla að lesa upp pistil sem einn af borgarfulltrúum okkar Framsóknarmanna skrifaði á dögunum um þetta mál, um mikilvægi þess að neyðarbrautin verði opnuð að nýju. Þar skrifar borgarfulltrúi okkar Framsóknarflokksins, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, með leyfi forseta:

„Í niðurstöðu Samgöngustofu frá 1. júní 2015 um áhættumatsskýrslu Isavia vegna fyrirhugaðrar lokunar flugbrautar 06/24 kemur m.a. fram að áhættumatið nái hvorki til áhrifa á flugvallarkerfið í landinu í heild sinni, neyðarskipulags almannavarna né áhrifa á sjúkraflutninga. Þá nái það ekki til fjárhagslegra áhrifa á flugrekstur. Bendir Samgöngustofa á að gera þurfi sérstakt áhættumat ef ákveðið verði að loka flugbrautinni. Tekur Samgöngustofa það sérstaklega fram að hún rýndi hvorki né tók afstöðu til skýrslu Eflu um nothæfistíma, en meiri hluti borgarstjórnar hefur ítrekað vísar til þeirrar skýrslu máli sínu til stuðnings við það að taka brautina af skipulagi. Samgöngustofa taldi hins vegar að skýrsla Eflu um nothæfisstuðul, en áhættumat Isavia er unnið með hliðsjón af þeirri skýrslu, sýndi að nothæfisstuðulinn færi ekki undir 95%. Gerði öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna (ÖFÍA) alvarlegar athugasemdir við það og hefur talið útreikninginn á nothæfisstuðlinum rangan í skýrslunni.“

Í pistli sínum skrifar borgarfulltrúi Framsóknarflokksins jafnframt um athugasemdir öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna:

„Rúmum þremur mánuðum eftir niðurstöðu Samgöngustofu eða með bréfi 9. september 2015 til innanríkisráðuneytis gerði öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna athugasemdir um að í skýrslu Eflu um nothæfisstuðul sé hvergi vitnað í leiðbeiningarreglur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar en í þeim sé að finna nánari skýringar á þýðingarmiklum öryggisatriðum sem Efla tæki ekki til greina sem leiddi til þess að skýrslan innihéldi alvarlegar villur.

Í bréfinu kemur fram að öryggisnefndin telur skýrsluna ónothæfa og óásættanlegt sé að áhættumatsskýrsla Isavia byggist á henni við ákvörðunartöku um breytt fyrirkomulag Reykjavíkurflugvallar. Í bréfinu er m.a. bent á að borið hafi að taka mið af hemlunarástandi flugbrautar, skyggni, skýjahæð, vindhviðum, brautarbreidd og stærðum flugvéla sem flugvellinum sé ætlað að þjóna. Þar sem þessara atriða hafi ekki verið gætt sé útreikningur nothæfisstuðuls rangur. Þá gerir öryggisnefndin athugasemdir við að áhættumatsskýrslan taki ekki mið af sjúkraflugi.

Lýkur öryggisnefndin bréfi sínu á því að gera alvarlegar athugasemdir við framvindu málsins og bendir á að það sé grundvallaratriði að úrvinnsla sem varði flugöryggismál sé unnin með lögmætum og óvefengjanlegum hætti. Afrit af bréfi öryggisnefndarinnar var sent Samgöngustofu, Isavia og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.“

Eins og fram kom í fyrri ræðu minni áðan er mjög mikilvægt að þetta mál verði unnið hratt og vel og bindur sá hv. þingmaður sem hér stendur miklar vonir við að hæstv. samgönguráðherra taki málið föstum tökum vegna þeirra orða sem féllu hjá honum í fréttaflutningi örfáum mínútum eftir að hann tók við stöðu hæstv. samgönguráðherra í janúar sl.