146. löggjafarþing — 37. fundur,  1. mars 2017.

opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli.

156. mál
[17:29]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Já, ég ætla rétt að vona að Framsóknarflokkurinn eigi sér sögu frá því áður en ég gekk í flokkinn, enda er ég ekki 100 ára líkt og Framsóknarflokkurinn. En ég vil bara þakka hv. þm. Vilhjálmi Bjarnasyni fyrir andsvörin. Við munum líklega bara setjast niður og ræða málin, en þetta er afstaða þingflokks Framsóknarflokksins, að neyðarbrautin verði opnuð að nýju. Við munum beita okkur í því máli áfram í þinglegri meðferð.