146. löggjafarþing — 39. fundur,  6. mars 2017.

samgöngumál.

[15:19]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Frú forseti. Ástæða þess að samkomulag um fjárlög í desember náðist var frekar einföld. Á meðal þess sem við náðum saman um var að bæta verulega í varðandi samgöngumál. Í því fólst líka að við tiltókum tilteknar framkvæmdir. Það var engin ríkisstjórn starfandi, þ.e. það var starfsstjórn, en það breytti því samt ekki að sú starfsstjórn setti okkur ákveðin mörk. Það sem hins vegar var uppleggið og kom fram í nefndaráliti nefndarinnar að beiðni ráðuneytisins var það að við myndum ekki tíunda allar þær breytingar sem við erum að gera á fjárlögunum. Þess vegna voru allar þær breytingar ekki tilteknar, hvort sem þær vörðuðu samgöngumál, menningarmál eða heilbrigðismál, þær voru ekki tíundaðar tæmandi í nefndarálitinu. Nú ætlar ráðherrann að ganga á svig við þessa ákvörðun þingsins vegna þess að þetta var ekki tíundað. Það er óásættanlegt og við þingmenn getum ekki sætt okkur við þetta, þá erum við bara viljalaus verkfæri inni á þingi og höfum lítið hér að gera ef (Forseti hringir.) á að hunsa þennan vilja. Hæstv. ráðherra Jón Gunnarsson (Forseti hringir.) þarf að leggja fram nýja samgönguáætlun (Forseti hringir.) sem við getum fjallað um.