samgöngumál.
Virðulegi forseti. Ég undrast ekki þau hörðu viðbrögð sem hér hafa komið upp, alls ekki. Ég vil þá segja að það hefði verið til mikilla bóta ef við hefðum átt tækifæri á að umhverfis- og samgöngunefnd fundaði með hæstv. samgönguráðherra til þess að fá alla vega frá hans hendi hvaða framkvæmdum hann er að skáka til í tíma. Ég segi fyrir sjálfan mig að þótt ég sé fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis hef ég ekki á blaði endanlegan lista frá ráðherranum í þeim efnum. Í öðru lagi vil ég segja og staðfesta að í fjárlaganefndinni í desember síðastliðnum lögðum við til heilmiklar breytingar á fjárlagafrumvarpi og við ræddum verkefni. Við ræddum að festa fjármagn til Dýrafjarðarganga. Við ræddum um Herjólf, um stórverkefni eins og Dettifossveg, en við negldum ekki niður á verkefni í endanlegri greinargerð nefndarinnar, enda litum við þannig á að ráðherrann yrði að hafa með einhverjum hætti sjálfsforræði í þeim málum, því að hann fæst náttúrlega við það að stoppa upp í 9 milljarða gat (Forseti hringir.) sem varð eftir eftir vinnu fjárlaganefndar síðastliðinn desember.