einkarekstur í heilbrigðisþjónustu.
Frú forseti. Skilgreining á starfsemi hjá Klíníkinni eða annars staðar eftir því hvort um sé að ræða sérhæfða sjúkrahúsþjónustu eða starfsstöð heilbrigðisstarfsmanna er á reiki kannski vegna þess að lögin eru að einhverju leyti ekki nógu skýr. Það er ljóst að starfsemi sem fer fram á Klíníkinni og öðrum einkareknum stöðvum er greidd samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar er á grundvelli rammasamninga við sérfræðinga.
Ég held að stóra spurningin sé vinna í aðgerðum sem heyra undir svokallað biðlistaátak, þ.e. aðgerðir sérstaklega á liðaskiptum, hjartaþræðingum, augnaðgerðir, sem Alþingi ákvað að setja þriggja ára innspýtingu í. Við erum núna að undirbúa og langt komin með að undirbúa annað árið af þessu sérstaka átaki.
Við höfum ekki tekið ákvörðun um að semja við einkaaðila í því samhengi. Megnið af þessum aðgerðum sem hafa verið í biðlistaátökum hafa verið framkvæmdar af opinberu spítölunum og heilbrigðisstofnununum. Eins og er lítur alveg ágætlega út með framhaldið á þessu ári.
Ég verð að koma dýpra inn í þetta í seinni ræðu minni.