fsp. 5.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Hér er annað mál sem ný ríkisstjórn og sá ráðherra sem hér stendur kemur að þegar ríkisstjórn er mynduð í byrjun janúar. Staðan og útlitið á stöðunni er ekki í samræmi við þau fjárlög sem voru samþykkt af Alþingi fyrir áramót. Við höfum horft sérstaklega á áhættuliðinn vegna lyfja og byrjuðum á að horfa á þann lið. Það var ákvörðun, samþykkt ríkisstjórnar, að fela fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra að rýna það, þ.e. þá fyrirsjáanlegu framúrkeyrslu, og koma með aðgerðir. Það erum við að skoða en höfum ekki gert. Það sama má segja um sérfræðiþjónustuna og hjúkrunina. Þar lítur út fyrir að við förum fram yfir, allar líkur eru á því. Sú vinna, aðgerðavinna, er í gangi hjá okkur. En hún er auðvitað líka tengd vinnu við fjármálaáætlun sem fer fram undir ansi mikilli pressu í útgjaldamiklum ráðuneytum eins og velferðarráðuneytinu, eða heilbrigðishluta þess. Þetta er allt saman dálítið uppi á borðinu hjá okkur í einu. Það verður að segjast alveg eins og er. En ég er meðvitaður um þennan vanda og við í ráðuneytinu erum að skoða hvað sé til ráða.