skipulag þingstarfa, orð fjármálaráðherra í viðtali.
Frú forseti. Ég verð að biðja hæstv. forseta að rifja það aðeins upp með mér hvernig þetta er eiginlega hér á landi. Í hvaða umboði vinna hæstv. ráðherrar? Er það ekki rétt hjá mér, frú forseti, að hæstv. ráðherrar vinni í umboði Alþingis og þeir eigi að gera það sem Alþingi samþykkir, framkvæma það? Getur það verið að nýir ráðherrar sem ekki hafa setið áður á þingi átti sig ekki á hlutverki sínu? Það er mjög alvarlegt, það er bara mjög alvarlegt.
Ég held að við verðum að fara að rifja upp ýmsar samþykktir sem samþykktar hafa verið hér samhljóða af öllum þingmönnum. Ég minni á samþykktir þingmannanefndarinnar sem vann úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem einmitt var talað um að við þyrftum að efla þingið og styrkja stöðu þess gegn framkvæmdarvaldinu. Það er einhver öfugþróun hér í gangi, menn eru eitthvað að misskilja hlutverk sitt og þetta verður frú forseti að rétta af.