staða fanga.
Frú forseti. Takk, hv. þingmaður, fyrir umræðuna. Mig langar að nefna eitt atriði sem betur mætti fara í fyrirkomulagi okkar á fullnustu refsinga. Á Norðurlöndunum og flestum nágrannaríkjum geta dómarar dæmt fólk til samfélagsþjónustu. Það getur verið gott úrræði t.d. fyrir unglinga sem villast af braut. Brotið hefur þá afleiðingar án þess að þær séu of harkalegar. Mild refsing er líklegri til betrunar. Á Íslandi hefur dómari einungis það úrræði við mörgum brotum að dæma fólk í fangelsi, skilorðsbundið eða óskilorðsbundið. Maður sem dæmdur er í óskilorðsbundið fangelsi getur svo sótt um til Fangelsismálastofnunar af afplána heldur með samfélagsþjónustu. Það er sem sagt á valdi stjórnvalds að ákveða hvort maður sem dæmdur er í fangelsi afplánar það frekar með samfélagsþjónustu.
Á þessu eru ýmsir ókostir. Í fyrsta lagi er vafamál hvort þetta uppfylli skilyrði stjórnarskrár um þrískiptingu ríkisvaldsins, að stjórnvöld breyti nýuppkveðnum dómum dómsvaldsins. Í öðru lagi er þetta afar ógagnsætt. Ákvarðanir eru ekki birtar eins og dómar og því geta fangar ekki áttað sig á því hvort þeir njóti jafnræðis við aðra í svipaðri stöðu.
Vegna þessa ógagnsæis geta verjendur heldur ekki upplýst skjólstæðinga sína nægilega um hvers þeir geta vænst. Þá er hætt við að þetta verði til þess að dómarar dæmi ungmenni ítrekað í skilorðsbundið fangelsi, veigri sér við að dæma þá til óskilorðsbundinnar refsingar. Ungmenninu sem fær skilorðsdóm getur fundist brotið hafa engar afleiðingar og brýtur síðan ítrekað af sér án þess að finna af því afleiðingar. Skilorðsdómarnir safnast svo upp þar til viðkomandi fær óskilorðsbundinn dóm sem tekur mið af skilorðsrofi og getur því orðið nokkuð langur og harður. Betra væri ef dómstólarnir gætu fljótt í ferlinu dæmt viðkomandi til samfélagsþjónustu sem væri til þess fallin að beina honum á rétta braut. Fyrirkomulagið er því ógagnsætt, ekki vel fallið til betrunar og lögfræðingar hafa dregið í efa að það standist stjórnarskrá.