146. löggjafarþing — 40. fundur, 7. mars 2017.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
207. mál
Virðulegi forseti. Það voru held ég á þriðja tug eða fjórða tug kosta sem verkefnisstjórnin skoðaði ekki þótt henni beri að skoða þá samkvæmt tillögu Orkustofnunar. Ég spyr: Hvar er lagastoðin fyrir því að verkefnisstjórn sleppi því að skoða alla kosti?