146. löggjafarþing — 40. fundur,  7. mars 2017.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

207. mál
[15:44]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Björt Ólafsdóttir) (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vildi bara koma upp í stutt andsvar til að reyna að bregðast við nokkrum hlutum sem komu fram í máli hv. þingmanns. Ég þakka ræðuna og innleggið um þetta mikilvæga mál.

Alveg rétt með rammaáætlun, þetta er verkfæri, mannanna verk. Eins og ég lagði áherslu á munum við halda áfram að þróa verkfærið sé vilji til þess. Ég tel að til mikils sé að vinna að halda sig við rammaáætlun en við séum ekki hér, eins og áður var, að karpa um einstaka virkjunarkosti. Það var eitthvað sem allur þingheimur sá að gekk ekki upp.

Samfélagsleg áhrif, efnahagsleg áhrif. Þetta þarf að skoða betur. Hvað liggur á? spyr hv. þingmaður. Ja, samkvæmt laganna hljóðan ber umhverfis- og auðlindaráðherra að leggja fram þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landsvæða á fjögurra ára fresti. Það er það sem ég er að gera. Mér liggur ekkert á. Mér finnst að Alþingi megi alveg taka sinn tíma í að fara vel yfir málin. Það er ekkert nema gott um það að segja. En þetta er einfaldlega sú lagalega skylda sem er sett á mínar herðar og ég fylgi henni og gerði það með því að leggja til óbreytta tillögu verkefnisstjórnar, enda var það faglegt mat.

Bara eitt að lokum. Hv. þingmaður hefur áhyggjur, að mér heyrist, af öllum þeim virkjunarkostum sem fara í nýtingu. Það er ekki endilega þannig að það verði allt virkjað. Umhverfismat framkvæmda á t.d. eftir að koma þar að. Það er kannski ekki alveg algerlega beint samband á milli. Og svo vil ég segja líka að biðflokkurinn er mjög stór. Það er sannarlega ástæða til að skoða marga virkjunarkosti betur og ígrunda þá. (Forseti hringir.) Það verður gert áfram.