146. löggjafarþing — 40. fundur,  7. mars 2017.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

207. mál
[15:50]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það að ætla að kanna hvernig þetta muni allt líta út þegar virkjunin er komin á teikniborðið og sú vél komin af stað finnst mér pínulítið eins og að ætla að kanna hvernig bremsubúnaður á bíl muni virka eftir að hann er kominn af stað og út á götu. Ég verð að segja að mér er ekki sérstaklega rótt yfir því að það verði einhvers konar trygging fyrir því að þar verði allt í lagi. Annars vil ég bara fagna orðum hæstv. umhverfisráðherra varðandi það að nýtingarflokkur sé í raun aðeins leyfi, þ.e. að við séum búin að flokka hvar við ætlum að kanna frekar hvort hagkvæmt sé eða rétt að virkja. Ég fagna því. Oft og tíðum höfum við í gegnum árin séð að stjórnvöld horfa á þetta þannig að það að virkjunarkostur sé í nýtingarflokki þýði grænt ljós. Ég fagna því þessum orðum ráðherra. Ég hlakka til að fá rammaáætlun inn á borð umhverfis- og samgöngunefndar og vonast til að við munum eiga gott samstarf þar. Því að þetta er mál sem þarf að huga vel að, eins og ég kom að áðan. Ég ætla bara að endurtaka og gera að lokaorðum mínum þörfina sem ég tel vera á að horfa heildstæðar á öll þessi mál. Því allt tengist þetta saman; orkunýting, orkuflutningur, virkjanir, græna orkan okkar og hvernig við ætlum að standa við loftslagsmarkmið okkar. Ég lýsi mig reiðubúinn í þá vinnu að vinna að því sameiginlega og vinna eftir því sjónarmiði sem við eigum öll að vinna eftir, að náttúran njóti vafans.