áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Við ræðum nú tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Málið var töluvert mikið rætt á síðasta þingi. Eðlilega. Þetta er stórt mál sem við þurfum að fara vel yfir í þinginu. Ég vona að sæmilegur friður ríki nú í umræðu um málið. Mér finnst að framsetning málsins núna sé svolítið álagspróf og reyni á rammaáætlun, hvort hún standist það álag að verða stjórntæki sem við getum notað og tekið mark á í þingsal og í nefndum þingsins og reynt að klára málið.
Mér finnst eins og hæstv. þingmaður Kolbeinn Óttarsson Proppé hafi haldið að við þyrftum að búa til eitt kerfið enn um val á virkjunarkostum. Það getur þá vel verið, ef þetta kerfi gefst alveg endanlega upp. En við skulum sjá til hvort umræðan verði nú ekki hófstillt. Síðan fer málið inn í umhverfis- og samgöngunefnd þar sem við ætlum að ræða málið.
Það eru auðvitað einhverjir hlutir hér sem við sættum okkur ekki við. Eins og fram hefur komið er þetta málamiðlun til jafnræðis. Það er mjög mikilvægt að raða virkjunarkostunum og að kostir fái að fara til áframhaldandi skoðunar. Það er auðvitað alveg ljóst að gera þarf umhverfismat á framkvæmdum varðandi þá kosti sem fara í nýtingarflokk. Þar er til dæmis gerð skoðun á laxinum. Á þessu stigi málsins er ekki nauðsynlegt að rannsaka laxinn. Það kemur í umhverfismati framkvæmda.
Aftur á móti var það eitt af stærstu málunum á síðasta kjörtímabili að ræða þessi mál og rannsóknir á laxinum. Það kom margoft fram í atvinnuveganefnd að það eru fáir laxastofnar jafn mikið rannsakaðir og laxastofninn í Þjórsá. Sérfræðingarnir sem komu fyrir nefndina sögðu að það væru í raun engu við það að bæta. Auðvitað er alltaf einhver óvissa og það er hægt að gagnrýna hlutina endalaust. Það verður litlu bætt við það. En umhverfismat framkvæmda verður sem sagt gert.
Ég hef svolítinn áhuga á vindmyllulundunum sem nefndir eru í þessu plaggi. Í lögum um rammaáætlun er reyndar ekki gert ráð fyrir að nefndin fjalli um vindorku, en fjallað er um Búrfellslund og Blöndulund og talað um að setja Búrfellslund í biðflokk. Það kemur mér svolítið á óvart. Hann er reyndar á jaðri hálendisins, á afar sérstökum stað, en mér finnst og hefur alltaf fundist sem miklum náttúruunnanda að sú staðsetning hafi verið einkar vel valin á sínum tíma, fyrir innan Búrfellið og á virkjunarsvæði. Það hlýtur að koma til frekari skoðunar.
Ég undrast það líka að hér komi fram að það séu engin not fyrir það rafmagn sem talað er um að framleitt yrði eða að þeir kostir gefi möguleika á allt að 1.400 MW framleiðslu. Ég sé ekki fyrir mér að þessar virkjanir fari nú alveg í gang á næstunni. Ég held að það geti tekið áratug eða -tugi að koma þessu af stað. Ég held að það sjái allir að ekki verður vaðið í virkjanir hér á hverju horni, enda held ég að það væri mjög óeðlilegt. Hérna eru reyndar fáir vatnsaflsvirkjunarkostir. Ég hefði viljað sjá fleiri. Þeir eru sjö. Tíu eru á háhitasvæðum. Þar af eru átta á Reykjanesi.
Ég held að ef við, sem vorum að ræða orkuskipti í þinginu fyrir nokkrum dögum, meinum eitthvað með því að við viljum virkilega taka á þeim verkefnum sem þar bíða okkar, orkuskiptum fyrir fiskimjölsverksmiðjurnar, bílaflotann og fyrir atvinnulífið í heild sinni, sé alveg ljóst að það þarf meira rafmagn. Okkur vantar rafmagn. Það eru mjög mörg tækifæri sem bíða og nýta 5–50 MW. Minni háttar iðnaður alls lags, sem ég held að sé mjög eftirsóknarvert fyrir okkur Íslendinga að skoða. Til þess að slík fyrirtæki, jafnvel hátæknifyrirtæki, komi til landsins og nýti þessa orku er mjög mikilvægt að við séum þó búin að raða flokkum, kostum, og það sé þá hægt að hafa þá á lager þegar kemur að því einhver vill koma og virkja. Ef við erum ekki viðbúin því að selja rafmagnið þá sækist enginn eftir því. Við þurfum að hafa tækifærin klár, vera búin að skoða hvort hægt sé að virkja. Þetta plagg sem við vinnum að núna er bara fyrsta skrefið í því að skoða hvort virkjunarkosturinn sé hæfur. En það er langur vegur eftir að því að þessir kostir sem eru í orkunýtingarflokki verði að virkjunum.
Ég ætla svo ekki að fara yfir hina flokkana sérstaklega. Okkur mun greina eitthvað á um þá. Ég held að það sé mikilsvert fyrir okkur að við náum einhverri lendingu í þessu máli og getum í sátt reynt að klára þetta þó að okkur sýnist sitt hverju um marga hluti í þessu plaggi. Hér hefur verið minnst á loftslagsviðmið Sameinuðu þjóðanna. Hvað er betra í því en að stuðla að aukinni endurnýjanlegri orkuframleiðslu? Ég held að það sé afar mikilvægt.
Ég segi fyrir mig: Ég hlakka til að takast á við verkefnið í umhverfis- og samgöngunefnd. Við erum hér með stjórntæki til þess að taka ákvörðun um framhaldið. Ég held að tillaga ráðherrans sé ágæt byrjun á þeim vegi sem við viljum fara. Þingið hefur það vald að skoða þessa kosti og meta þá og gera tillögur um breytingar. Ég legg áherslu að við gerum það í þeirri sátt sem sæmir þessari stofnun. Mér finnst að andinn í þinghúsinu sé þannig að það sé ekki þessi sami svakalegi hiti og var hérna síðast. Við eigum að láta okkur miða fram á veginn og ná sameiginlegri niðurstöðu í verkefninu.