146. löggjafarþing — 40. fundur,  7. mars 2017.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

207. mál
[16:13]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Björt Ólafsdóttir) (Bf) (andsvar):

Eins og ég fór yfir í framsögu minni er það verkefnisstjórn sjálf sem setur sér viðmið um hópa og hvað þeir hópar gera. Verkefnisstjórn sem nú er að ljúka störfum setti sér vissulega viðmið sem áttu að fjalla um efnahagsleg áhrif sem og samfélagsleg áhrif sem ég held að hv. þingmaður sé að vísa til. Það er ljóst að mínu mati að betra hefði verið ef þessir hópar hefðu sagt sem svo: Já, við getum bara kvittað upp á þetta allt og skilað inn niðurstöðum. Þessir hópar sjálfir, þeir sérfræðingar sem voru þarna, sögðu: Þetta er ekki alveg svona einfalt. Það er ekki hlutverk okkar og við höfum ekki gögn til að fjalla um efnahagsleg áhrif af virkjunum, við höfum t.d. ekki gögn um orkusölusamninga, sem væri líka mjög óeðlilegt ef þeir hefðu þá því að þetta eru viðskiptasamningar á milli aðila. Svo sögðu þeir líka: Efnahagsleg áhrif. Hver er verðmiðinn á náttúrunni? Við skulum þá bara fara að finna út úr því hvernig við þróum aðferðafræði (Forseti hringir.) til þess að setja hann á náttúruna. Það skulum við endilega gera í 4. áfanga. Og það er ætlunin. En sú aðferðafræði er ekki í hendi enn þá.