áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Mér finnst mikilvægt að þetta sé alveg skýrt hjá hv. þingmanni. Að stjórnarflokkar leggi blessun sína yfir það að mál séu lögð fram er eitt, það eru engin tíðindi í því. Það sem það þýðir að leggja fram mál í umboði ríkisstjórnar, sem nýtur stuðnings meiri hluta Alþingis, er að styðja málið efnislega. Það er skilningur þingsins og hefur verið skilningurinn sem felst í því að þingbundin ríkisstjórn sé við völd, nema efnislegur fyrirvari sé gerður í stjórnarflokkunum. Þess vegna spurði ég hv. þingmann hvort svo væri. Ég skil hann þannig að hann vilji vera á gráu svæði hvað þetta varðar, hann telji fullnægjandi að hann styðji að málið sé lagt fram en að hann þurfi ekki að kveða upp úr með það hvort hann styðji málið efnislega. Það er samkvæmt orðanna hljóðan ekkert annað en fyrirvari við málið. Þá tel ég tilefni til að hvetja þingmenn stjórnarflokkanna til að ráða ráðum sínum, í ljósi þessarar stöðu. Eru fleiri þingmenn stjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokksins, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar, sem gera efnislegan fyrirvara við málið? Það skiptir máli.
Hv. þingmaður hefur talað um að hann telji að skoða þurfi málið í hörgul. Ég vil spyrja hann hvort hann telji við skoðun málsins eins og það lítur út akkúrat núna, að gera þurfi efnislegar breytingar á þeirri tillögu sem hæstv. ráðherra leggur hér fram í krafti embættis síns og í umboði hv. þingmanns meðal annars. Hæstv. ráðherra þarf 32 þingmenn. Á hún þá alla á bak við sig? Í þessum málum og öðrum? Svo vil ég biðja hv. þingmann að svara mér að því er varðar friðlýsingar þeirra tillagna sem liggja nú þegar í verndarflokki.