áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég held að það sé alveg skýrt hvað felst í þinglegri meðferð máls, þessa máls og annarra mála. Ég vænti þess að hv. þingmaður sé jafnvel sammála mér um mikilvægi þess að þingið taki það til efnislegrar meðferðar, hlusti eftir þeim sjónarmiðum sem fram koma. Hv. þingmaður er jafnframt meðvitaður um, geri ég ráð fyrir, að skiptar skoðanir eru um ýmislegt í þessu máli, bæði varðandi það hvaða formreglum hefur verið fylgt eða mögulega ekki fylgt eða hvernig efnisatriði eru flokkuð og hvaða mat er lagt til grundvallar þeirri niðurstöðu sem hér er.
Ég tel mjög mikilvægt að þingið geri nákvæmlega þetta. Þannig dýpkum við umræðuna. Þannig tryggjum við að öll sjónarmið komi fram. Þannig tel ég að Alþingi sé betur í stakk búið til að fara með þetta mál áfram og að við náum einhverjum árangri á grundvelli þeirrar umgjarðar sem er um málið.
Varðandi þau efnisatriði sem hv. þingmaður spurði að öðru leyti um, þ.e. friðlýsinguna — án þess að fara djúpt í það mál vil ég eingöngu segja að þau sjónarmið sem lögð eru til grundvallar og birtast m.a. í faghópi 1, 2 og 4, skipta öll máli. Að sjálfsögðu skiptir máli hvaða sjónarmið er lagt til grundvallar því sem snýr að friðlýsingu mikilvægra náttúrusvæða, umhverfis, og hvernig það er metið, hvernig það er flokkað og hvernig það er greint og hvernig virkjunarkostum eru gefnar einkunnir eftir þeim flokkum.