áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra kærlega fyrir góða yfirferð um þessa tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Það er búið að segja eitt og annað hér núna í þessum þingsal og það fer ekkert hjá því að auðvitað hafa menn misjafnar skoðanir. Við verðum að virða það. Eins og hæstv. ráðherra legg ég hins vegar á það áherslu að við reynum að vinna þetta verk sem fyrir okkur er lagt í eins mikilli sátt og samlyndi og mögulegt er. Það getur enginn borið ábyrgð á annars orðum eða annarra skoðun en verkefnið er skýrt, hér liggur fyrir áætlun sem skiptir þeim orkukostum sem hafa verið tilgreindir í nýtingarflokk, í biðflokk og í verndarflokk. Eins og fram hefur komið geta menn verið misánægðir með það og þegar ég horfi til Norðurlands hef ég svo sannarlega fengið skilaboð um að menn vilji sjá virkjunarkosti í verndarflokki, í nýtingarflokki og ég skil það á sinn hátt vel. Ég tel hins vegar að við þurfum að huga að ýmsu þegar við tölum um nýtingu á þeim náttúruauðlindum sem við höfum yfir að ráða. Í þessu tilfelli erum við að tala um virkjunarkosti og í þeirri yfirferð sem faghóparnir hafa farið um þessa kosti og gert grein fyrir er í flestum tilfellum góður rökstuðningur við það. Menn geta hins vegar haft á því mismunandi skoðanir. Ég segi hér að ég tel að við þurfum að líta til þess hvort við erum að ganga á náttúruminjar sem eru óafturkræfar ef við förum að virkja á tilteknum stöðum en við þurfum líka að skoða hvaða möguleikar eru til búsetu á landinu, þannig að það er í ýmis horn að líta hvað þetta varðar. Ég hef sagt það og get tekið undir það sem fram hefur komið að við erum núna með í farvatninu allt að 1.400 megavött sem hægt er að nota til þeirra hluta sem við þurfum rafmagn til, en hins vegar verðum við að horfa til þess hvernig við flytjum þessa orku. Ef við erum í þeirri stöðu að það má ekki fara yfir land með línulögn til að flytja þetta rafmagn stöndum við frammi fyrir þeim vanda að atvinnuuppbygging á tilteknum svæðum getur kallað á að það þurfi að virkja á einhverjum landsvæðum sem við sjáum ekki fyrir okkur núna.
Ég er ekki með þessu að segja að ég styðji ekki við þessa þingsályktunartillögu, ég tel að við eigum að taka hana inn í nefndina, fara vel yfir hana og vinna eftir bestu samvisku og kalla til okkar sérfræðinga. Það hefur komið fram hjá langflestum sem hér hafa talað að menn geta haft misjafnar skoðanir en við þurfum að finna það sem við getum verið sátt við.
Þegar ég skoða hérna það sem er sett í biðflokk kemur í langflestum tilfellum fram að það eru ekki fullnægjandi gögn. Það þýðir að ef á að færa það sem er í biðflokki yfir í annan hvorn flokkinn þarf að afla meiri gagna, þá þarf að rökstyðja á hvorn veginn menn ætla að flytja þessa virkjunarkosti og það er verkefni framtíðarinnar að gera það. Meðan við erum með þennan biðflokk er alveg ljóst að það fer ekki í vernd og það fer ekki í nýtingarflokk.
Hér er verið að setja í nýtingarflokk Blöndulundinn svonefnda og mig langar að koma aðeins inn á það að ég hef ekki alveg getað séð fyrir mér muninn á því að vera með vindmyllur vítt og breitt um landið sem hafa ákveðna ásýnd og sem eru á sinn hátt jafnvel meira áberandi í landinu en línulögn. Ég held að það sé kominn tími til þess að við förum að taka ákvörðun um það hvaða leiðir við ætlum að fara í flutningi á raforku og það sé í rauninni meira áríðandi til þess að geta náð sátt í það hvað við þurfum mikið að nýta. Ég held að það sé verkefni og mun leggja til við hv. umhverfis- og samgöngunefnd að við beitum okkur fyrir því að unnin verði áætlun um flutning á raforku þannig að við getum róað okkur aðeins niður í því hvaða kostir það eru sem við erum að togast á um varðandi vernd og orkunýtingu.
Ég ætla að láta þetta duga núna.