146. löggjafarþing — 40. fundur,  7. mars 2017.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

207. mál
[17:51]
Horfa

Valgerður Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að það hafi komið nokkuð skýrt fram í máli mínu að ég tel að meginvandinn hjá okkur núna liggi í því að það vantar flutningsgetu til að flytja það rafmagn sem þó er til staðar og sérstaklega þegar við erum komin út fyrir suðvesturhornið.

Ég sem þingmaður fyrir Norðausturkjördæmi fæ þau skilaboð í hvert skipti sem ég fer norður í land að þar séu fyrirtæki sem ekki geti farið af stað vegna þess að ekki er nægjanleg orka til í kerfinu og einnig fyrirtæki sem vilji þróast áfram, stækka og verða öflugri, veita fleiri atvinnu, en þau geti það ekki vegna þess að orku skortir. Það segir okkur að það vantar net til að flytja orkuna.

Þegar við stöndum frammi fyrir því að við erum með orku í orkuverunum en hún kemst ekki til neytenda þurfum við að koma okkur saman um hvernig það getur orðið. Þess vegna horfi ég til þess að við förum að mynda heildstæða stefnu um það hvernig við viljum sjá flutningsnetið fyrir raforku.