146. löggjafarþing — 40. fundur,  7. mars 2017.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

207. mál
[17:52]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Eins og ég kom inn á þá hygg ég að við deilum áhuga á stefnu varðandi línumál. En ég var kannski frekar að spyrja um hvort slík stefna þyrfti ekki að fara saman við aðra stefnu og áætlanir sem við erum ýmist búin að leggja fram eða erum að fara að leggja fram. Allt þyrfti það að vera undir sama hatti og markmið okkar í loftslagsmálum. Ættum við ekki frekar að skoða virkjanir, línumál og orkunýtingu saman frekar en að skoða það hvert í sínu lagi og jafnvel, þegar kemur að því máli sem hér liggur undir, ekki stíga frekari skref þar áður en heildræna stefnan liggur fyrir?

Kannski ég endurtaki þá spurningu til hv. þingmanns og spyrji hvað henni finnist um þær hugleiðingar mínar. Og svo fæ ég kannski að spyrja beint. Ég tek undir með hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur sem talaði hér á undan og ég hegg í sama knérunn og hún: Er það skilningur hv. þingmanns að ekki verði tilfærsla milli flokka nema það yrði þá úr nýtingu í bið. Telur hv. þingmaður, formaður umhverfis- og samgöngunefndar, að það sé í lagi að færa á milli hvaða flokka sem er, eða deilir hún þeim skilningi sem verið hefur til staðar hér á þingi og var á fyrri stigum málsins, að aðeins mætti færa úr nýtingu í bið til að gefa sérfræðingum færi á að skoða betur gögn og rannsaka ef þurfa þætti?