áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Hæstv. forseti. Varðandi tilfærslu milli flokka vil ég segja að sennilega er gerlegt að flytja kosti á milli allra flokka ef menn velja þá leið. Það kemur fram í orðum hæstv. ráðherra að það er í höndum þingsins hver endanleg niðurstaða verður. Hins vegar er þetta ekki dægurmál, eins og ég hef sagt hér, bæði í þessu andsvari og í andsvari við hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur. Ég tel að við þurfum að hugsa lengra en til dagsins í dag eða til morgundagsins. Ef við förum að færa á milli flokka þurfum við að hafa mikil rök fyrir því. Við þurfum að vanda okkur. En ég ætla ekki að standa hér og segja að ekki sé hægt að hreyfa eitt eða neitt. Það þýðir ekki að við séum með það í huga að gera það nú á næstunni. Við sjáum vonandi nýja kynslóð þingmanna koma hér inn á þing eftir einhver ár og hvað gerist þá er kannski ekki í okkar höndum að svara til um núna.
Ég vil bara segja að ég held að það hljóti að komast til skila að ég vil vinna þessa vinnu, ef unnt er, í samvinnu.