áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég finn mig knúna til að koma hingað upp og ræða þá tillögu sem liggur fyrir þinginu, um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Fyrst vil ég segja að að sjálfsögðu er margt gott í þeirri áætlun sem nú er lögð óbreytt fram frá fyrra þingi, þá sérstaklega hvað varðar verndarflokkinn, og kemur kannski ekki á óvart að ég fagni því sérstaklega. Ég horfi þá til að mynda til Skjálfandafljóts, Skaftár og fleiri þátta, og Norðlingaölduveitu sem hefur talsvert verið til umræðu í þessum sal á undanförnum árum. Og svo auðvitað jökulvötnin í Skagafirði. Það er margt ánægjulegt að sjá, bæði á sviði vatnsafls og á háhitasvæðum. Ég nefni Brennisteinsfjöll og Kerlingafjöll þar sem dæmi.
Ég vil hins vegar nefna í upphafi míns máls að ég hef á undanförnum árum, allt frá árinu 2013, árlega spurt eftir því hvar friðlýsingar svæða í verndarflokki standi. Ég hef ekki komist til að spyrja nýjan hæstv. umhverfisráðherra um það mál, ég mun gera það við tækifæri. Því miður hafa svörin verið á eina leið í öll þrjú skiptin, þ.e. engri friðlýsingu hefur verið lokið. Ég vil hefja mitt mál á því að brýna hæstv. umhverfisráðherra að gera nú gangskör í því að ljúka friðlýsingu einhverra þeirra svæða sem höfnuðu í verndarflokki við síðustu samþykkt rammaáætlunar því að það skiptir máli að ljúka því verki sem þar var hafið.
Eftir að hafa fylgst með umræðunni, eins og ég hef getað í dag, heyri ég að hv. þingmenn nálgast málið úr ólíkum áttum. Það vekur að sjálfsögðu athygli þegar einhverjir hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans koma hér upp og ræða plaggið sem lagt er fram í nafni ríkisstjórnarinnar eins og það sé undirorpið verulegum breytingum í meðförum þingsins. Það á ekki við um alla hv. stjórnarþingmenn, ekki hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur sem talaði hér á undan. En það hefur komið fram í máli nokkurra hv. þingmanna. Að sjálfsögðu hlýt ég að velta fyrir mér hvort full sátt sé um tillöguna eins og hún er lögð fram núna. Það mun væntanlega skýrast í meðförum þingsins en það hefði átt að skýrast í dag við fyrri umr. Ef við eigum bara að hlusta á orð þeirra sem hér hafa talað liggur fyrir að ýmsir úr stjórnarliðinu telja að færi séu á að gera verulegar breytingar á tillögunni. Ég vil nota tækifærið og segja, af því að einhverjir hv. þingmenn ræddu líka að þessi tillaga ylli ávallt miklum deilum og miklu almennu havaríi, að það er einmitt vegna þess háttar málflutnings að þessi mál hafa leyst upp í deilum og farið í almennt havarí, svo ég noti það orð.
En ég vil nefna þrennt efnislegt sem ég lýsi áhyggjum af; það er í fyrsta lagi Skrokkölduvirkjun. Hún er eitt af því sem við ræddum líka síðast þegar þessi tillaga var þá til umræðu. Því hefur verið haldið fram í umræðunni að umhverfisáhrifin af Skrokkölduvirkjun séu óveruleg þegar kemur að því hvernig hún fellur að landslagi og öðru slíku. En það breytir því ekki að hún er innan þeirra marka þar sem við höfum viljað sjá miðhálendisþjóðgarð. Hún er innan þeirra marka þar sem við höfum dregið línuna, við sem höfum verið fylgjandi miðhálendisþjóðgarði. Skrokkalda er innan þeirrar línu. Ég hefði helst viljað sjá, sérstaklega í ljósi stjórnarsáttmálans þar sem talað er fyrir vernd miðhálendisins, sem er mikilvæg yfirlýsing, að Skrokkalda væri nú tekin út fyrir sviga út frá þeim sjónarmiðum að eðlilegt væri að setja hana í bið á meðan þau áform væru til skoðunar að stofna miðhálendisþjóðgarð. Ég hef kosið að skilja stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þannig að það sé jú stefnumiðið þó að þjóðgarður sé raunar ekki nefndur í stefnuyfirlýsingunni.
Síðan vil ég segja það sem ég nefndi áðan í stuttu andsvari við hæstv. ráðherra varðandi málefni villta laxins. Hæstv. ráðherra benti á það sem kemur fram í greinargerð, að þrátt fyrir að veruleg óvissa sé um áhrif Þjórsárvirkjana á villta laxinn sé það nokkuð sem taka eigi fyrir á síðari stjórnsýslustigum. Það er auðvitað umhugsunarefni í ljósi þess að í gildi er umhverfismat sem unnið var á árunum 2001–2003, að vísu hefur það umhverfismat verið kært með þeim rökum að það sé bæði ófullnægjandi og of gamalt. Sú kæra liggur nú hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og hefur raunar legið þar í meira en ár. Við vitum enn ekki hver niðurstaðan verður úr þeirri kæru. En í fyrsta lagi liggur fyrir umhverfismat á þessum virkjunum. Það er ekki fullvissa um að gert verði nýtt umhverfismat ef svo færi að þessar virkjanir væru þá settar í nýtingarflokk. Það vekur okkur til umhugsunar um að stytta þarf þann tíma sem umhverfismat gildir almennt.
Síðan vil ég segja að það er líka umhugsunarefni, ef við skoðum bara ferlið í heild sinni, að hér er sagt: Það er ekki hægt að klára að taka afstöðu til laxastofnsins á þessu stjórnsýslustigi. Því er vísað til umhverfismats, vísað til útgáfu starfsleyfis eða framkvæmdaleyfis, þá væntanlega til Landsvirkjunar. En segjum sem svo að hæstv. ráðherra telji þegar á hólminn er komið að náttúran verði að njóta vafans, að óvissan sé of mikil gagnvart líffræðilegri fjölbreytni og að það sé hreinlega ekki hægt að veita framkvæmdaleyfi af því að þessi óvissa sé fyrir hendi. Þá getum við spurt okkur: Er það ekki of seint í ferlinu? Ég kann svo sem ekki svörin við því hvernig betur væri hægt að gera þetta. En þetta er eitt af því sem við hljótum að velta fyrir okkur, við sem störfum á Alþingi og berum pólitíska ábyrgð á þessari tillögu, verði hún afgreidd hér, við hljótum að minnsta kosti að vilja hafa svörin á reiðum höndum við því hver verði framgangurinn í málefnum villta laxastofnsins ef niðurstaðan verður áfram sú að mótvægisaðgerðirnar sem boðaðar hafa verið munu ekki skila árangri. Nú þykist ég ekki vera sérfræðingur en ég hef kynnt mér gögn málsins og það eru mjög sterkar vísbendingar, til að mynda frá Bandaríkjunum, um að mótvægisaðgerðir á borð við þessar seiðafleytur sem er verið að tala um skili ekki þeim árangri sem menn hafa vonast eftir. Ég tel mjög mikilvægt að þingnefndin skoði það mjög vel. Ég velti því upp hér: Hver er hemillinn ef óvissan er áfram fyrir hendi? Alþingi afgreiðir þessa tillögu, við erum jafnvel með umhverfismat í gildi enn þá þar sem á þessu er ekki tekið og boltinn endar svo hjá einhverjum hæstv. ráðherra sem ekki er hæstv. umhverfisráðherra, væntanlega, til að gefa út framkvæmdaleyfi. Nú þekki ég það ekki en væntanlega er það orkumálaráðherra sem gerir það.
Síðan vil ég að lokum, af því að tíminn flýgur bara áfram þegar mikilvæg mál eru rædd, koma að samfélagslegu áhrifunum. Auðvitað hefur gríðarlega margt breyst í þeim efnum frá því að þessi mál urðu fyrst verulegt tilefni deilna í samfélaginu í byrjun þessarar aldar í aðdraganda Kárahnjúkavirkjunar. Þá urðu þessi mál virkilega til þess að rífa upp samfélagið með rótum og skipa fólki í fylkingar. Það hefur mjög margt breyst í umhverfis- og náttúruverndarumræðunni, og flest, finnst mér, til hins betra. Það er gott. En það sjáum við líka á því sem sumir tala um, að horfa verði til hinna samfélagslegu áhrifa þegar um er að ræða, eins og hér er lagt til, þrjár virkjanir sem eru í byggð, þ.e. Þjórsárvirkjanirnar þrjár sem eru í byggð og munu hafa veruleg áhrif á samfélagið þar, atvinnuuppbyggingu þar. Ég vísaði í andsvari mínu fyrr í dag til atvinnuþróunarfélagsins Gjálpar þar sem saman kemur fólk af yngri kynslóðinni sem horfir til þess hvaða tækifæri séu fyrir hendi á svæðinu, hvernig hægt sé að nýta það svæði með sjálfbærum hætti, t.d. með ferðaþjónustu, sem ég hef nefnt, hugviti og nýsköpun. Þau benda á, sem mér finnst áhugavert, að hugsanlega hafi umræðan á þessu svæði jafnvel snúist um það að ef ekki væri virkjað myndi t.d. ekki vera sett brú yfir Þjórsá. Félagsmenn telja að bara það að setja brúna væri samfélagslega og efnahagslega jákvæðara fyrir þetta svæði en að setja virkjanirnar þar með. Þau vitna til þess að þar með muni samgöngumöguleikarnir breytast innan héraðsins, það muni auka möguleikana á að vinna að ólíkri atvinnuuppbyggingu.
Því miður eru tíu mínútur ekki langur tími til að ræða þessi mál. Hér kom fram í upphafi að samfélagslegu áhrifin hafi ekki verið fullmetin. En auðvitað hljótum við líka sem berum pólitíska ábyrgð á afgreiðslu þessa máls að velta því fyrir okkur hvaða afstöðu við eigum þá að taka til málsins í því ljósi. Einhverjir hafa þá sagt að það sé þá rétt að leggja það til hliðar að sinni í ljósi þess að þetta tókst ekki og aðferðafræðin sé ekki fullnægjandi. En um leið höfum við (Forseti hringir.) hinar sterku raddir sem biðja okkur um að skoða þau áhrif nánar þannig að það er líka risastórt viðfangsefni fyrir umhverfis- og samgöngunefnd.