146. löggjafarþing — 40. fundur,  7. mars 2017.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

207. mál
[21:12]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er ljóst að okkur þingmönnum í umhverfis- og samgöngunefnd er töluvert verk á höndum ef okkur er ætlað að meta þætti sem faghópar verkefnisstjórnar töldu sig ekki geta gert, þannig að það er bara að bretta upp ermar og taka til starfa.

Mig langar að spyrja hv. þingmann og hverfa kannski aftur til frumspurningarinnar sem er þörfin á virkjunum, þörfin á orku. Eins og hæstv. umhverfisráðherra kom inn á í sínu máli, eru um 1.400 megavött í nýtingarflokki. Ég hygg að raforkuframleiðsla miðað við höfðatölu sé hvergi meiri í heiminum en hér á landi. Hver er hin raunverulega þörf okkar á þessum tímapunkti, á útmánuðum 2017? Setjum það niður fyrir okkur fyrir hvað við ætlum að virkja 1.400 megavött. Í hvað telur hv. þingmaður að við munum nýta þá orku?

Og svo ég haldi áfram þessu tilbrigði mínu við það stef sem ég hef reynt að flytja í máli mínu í öllum þessum umræðum: Væri kannski ráð að huga að nýtingarþörfinni á þessum megavöttum, hver sem svo verður endanleg tala sem sátt næst um, í hvað eigi að nýta þá orku? Í orkuskipti í samgöngum, græna hagkerfið og grænu orkuna og iðnaðinn o.s.frv.?