orð fjármálaráðherra um Alþingi, dagskrá þingsins o.fl.
Frú forseti. Ég kem hér upp eins og í gær og ég er eiginlega að spá í að koma bara upp á hverjum degi og tala um hversu mikilvægt er að við fáum dagskrá þingsins, að við fáum að vita hver dagskrá þingsins er alla næstu viku, með fyrirvara. Þetta er ekki bara nauðsynlegt svo að við þingmenn getum unnið vinnuna okkar vel, skipulagt okkur og undirbúið okkur heldur líka fyrir almenning svo að almenningur geti fylgst með og komið með athugasemdir til okkar þingmanna sem við getum nýtt okkur í umræðunni. Við þurfum að hleypa almenningi meira inn í umræðuna og við gerum það með því að birta dagskrána með fyrirvara og gefum fólki tækifæri til þess að undirbúa sig almennilega.