146. löggjafarþing — 41. fundur,  8. mars 2017.

orð fjármálaráðherra um Alþingi, dagskrá þingsins o.fl.

[15:15]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Halldóru Mogensen og hv. þm. Birgittu Jónsdóttur varðandi þetta dagskrármál. Dagskráin snýst um forgangsröðunina, að vita hvaða mál kemur næst inn, óháð því hvernig málin raðast nákvæmlega inn á dagana. Við vitum að ef umræða lengist í einu máli ýtast öll hin aftur á bak. Á mánudagsfundum þingflokksformanna er verið að endurraða þessum forgangi. Þá fáum við að vita það með nægilegum fyrirvara fyrir vikuna á eftir. Þetta snýst aðeins um að vera búin að fá forgangslistann þannig að við vitum hvaða mál koma næst á dagskrá. Það þarf ekki að vera nákvæmlega þetta mál eða hitt á miðvikudegi eða á fimmtudegi, bara að málin séu að koma og við þurfum því að byrja að undirbúa okkur fyrir það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)