146. löggjafarþing — 41. fundur,  8. mars 2017.

orð fjármálaráðherra um Alþingi, dagskrá þingsins o.fl.

[15:24]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Ég verð þá að svara því að mér finnst persónulega að ef Alþingi ákveður að þenja út samgönguáætlun tveimur vikum fyrir kosningar hafi það auðvitað þau áhrif að auka vinsældir þeirra flokka sem eru á þingi á kostnað þeirra flokka sem eru það ekki. Mér finnst það ekki til eftirbreytni. Sérstaklega ef einhverjir þingmenn, og þeir verða að taka það til sín sem eiga, hafa í huga að hugsanlega verði ekki staðið við það sem þar er. Það taka þeir til sín sem eiga. Við slíkar aðstæður finnst mér það ekki til eftirbreytni en verð að leyfa hæstv. fjármálaráðherra að svara fyrir orðaval sitt, við hvernig hann orðar það.