146. löggjafarþing — 41. fundur,  8. mars 2017.

orð fjármálaráðherra um Alþingi, dagskrá þingsins o.fl.

[15:27]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg):

Frú forseti. Ég vil lýsa aðdáun minni á þolgæði forseti að sitja undir því að vera yfirlýstur siðleysingi, eins og aðrir sem samþykktu samgönguáætlun á síðasta þingi. Sú samþykkt byggðist ekki á siðleysi heldur brýnni þörf um allt land. Sú brýna þörf var enn til staðar þegar fjárlög voru afgreidd og þar dáist ég aftur að forseta að sitja róleg undir því að ráðherra kalli hana eins og aðra þingmenn sem samþykktu fjárlög og brugðust þannig við þessari brýnu þörf í samgöngumálum — að þeir hv. þingmenn séu kallaðir stjórnlausir. Ég vil láta færa það hér til bókar að ég tel forseta hvorki siðlausan né stjórnlausan, kann bara ágætlega við virðulegan forseta, og þætti gott að heyra hæstv. fjármálaráðherra taka undir þau orð og biðjast afsökunar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)