störf þingsins.
Frú forseti. Hugmyndina að sérstökum baráttudegi kvenna átti Clara Zetkin, þýsk kvenréttindakona og sósíalisti, sem bar hana fyrst upp á fundi Alþjóðasamtaka sósíalískra kvenna sem haldinn var í Kaupmannahöfn árið 1910. Síðan þá hefur 8. mars verið alþjóðlegur baráttudagur kvenna.
Barátta kvenna fyrir réttindum kvenna og jafnrétti er þó nokkuð eldri, svokallaðar súfragettur var býsna herská kvennahreyfing sem barðist með óvenjulegum og harkalegum meðulum, getum við sagt, svo sem hungurverkföllum, fyrir málefnum kvenna í lok 19. aldar og byrjun þeirrar 20., bæði í breska heimsveldinu og vestan hafs. Andstæðingarnir sögðu að konur væru of miklar tilfinningaverur til að fara með mikilvæg völd. Þær gætu ekki hugsað rökrétt og yfirvegað eins og karlmenn. Því miður verðum við enn vör við slík viðhorf, meira að segja nýlega á Evrópuþinginu, en það er sem betur fer mjög sjaldgæft núorðið.
Oft er fullyrt að jafnrétti kynjanna sé þegar orðið að raunveruleika hér á landi, bæði sé það tryggt með lögum og Íslendingar séu svo meðvitaðir um mikilvægi jafnréttis að ójafnrétti mælist varla. Þetta er því miður rangt. Óréttlæti leynist víða og staða karla og kvenna er sannarlega ekki jöfn á meðan kynbundinn launamunur mælist.
Sterkar konur og fyrirmyndir hafa rutt brautina fyrir okkur hinar hér á landi. Þó að konur nálgist það að vera helmingur þingmanna þá er kynjahalli sannarlega til staðar við ríkisstjórnarborðið. Það er nauðsynlegt og það er réttlætismál að konur sitji til jafns við karla við borðin þar sem mikilvægar ákvarðanir eru teknar fyrir samfélagið, hvort sem það er í ríkisstjórn, á þingi, í sveitarstjórnum, í samninganefndum um kaup og kjör, eða í stjórnum fyrirtækja.
Í síðustu sveitarstjórnarkosningum voru tvöfalt fleiri karlar í 1. sæti lista en konur, eða 123 karlar og 61 kona. Ég vil hvetja konur til að taka (Forseti hringir.) sér pláss og huga að því núna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem verða eftir nokkra mánuði. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)