störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en tekið undir hamingjuóskir til kvenna í tilefni dagsins. Raunar gæti ég staðið hér í allan minn úthlutaða tíma og tekið undir fjölmargar ræður sem hafa verið fluttar í dag. Þær hafa verið ansi margar góðar og komið inn á mörg góð og brýn mál.
Það ætla ég hins vegar ekki að gera. Mig langar að gera að umtalsefni þá staðreynd sem svo sem hefur verið rædd hér áður á undanförnum dögum og víðar og er staðan í samgöngumálum. Mig langar að fagna því að ráðherra samgöngumála sé nú kominn á flótta undan fyrri yfirlýsingum sínum sem voru á þá leið að staðan yrði bara eins og hún væri og ekkert væri hægt að gera í því. Núna hefur hæstv. ráðherra talað um að reyna að sækja aukið fjármagn í málaflokkinn og er það vel. Ég hef áður lýst því yfir að við í þingsal og í umhverfis- og samgöngunefnd gætum stutt ráðherra í því. Við skulum ekki gleyma því að samgönguáætlun var samþykkt í sátt. Það var ekki bara út í loftið eins og sumir hafa viljað tala um. Það var einfaldlega þannig að þingheimur mat það svo að þörfin væri mikil og í raun efast enginn um það. Þörfin er gríðarleg og úr henni hefur ekki dregið. Þess vegna er miður hvernig komið er fyrir málum, að ekki skuli hafa verið unnið meira að því að framkvæma þann vilja Alþingis sem svo skýrt kom fram í þessu lögformlega plaggi sem samgönguáætlun er.
En guð láti gott á vita og vonandi verður þessi barátta okkar, sem hefur orðið til þess að hæstv. samgönguráðherra hefur skipt um kúrs í stefnunni, til þess að frekari fjármunir fáist inn í þennan mikilvæga málaflokk.