framtíðarsýn fyrir skapandi greinar.
Frú forseti. Mér heyrist á ræðu hæstv. menntamálaráðherra hann vilja styðja og halda áfram með óbreytt ástand enda allt í góðu lagi að hans mati. En vægi skapandi greina í hagkerfi landsins hefur aukist rosalega mikið samhliða tækniframförum sem opna á að fleiri njóti þeirra og fleiri hafi aðgang að sköpunarverkunum. Meðan tækni hefur aukið á verðmæti sumra skapandi greina hefur hún sömuleiðis dregið úr verðmætum annarra. Það er því algjört lykilatriði að ríkisstjórn hvers tíma hafi góðan skilning á stöðu þessara greina og þeim aðstæðum sem þær búa við. Það þarf að taka ákvörðun hverju sinni um hvaða greinar eigi að styðja með beinum hætti og hvaða greinum er hægt að hlúa að með reglugerðarbreytingum og lagabreytingum og þar fram eftir götum og hvernig eigi svo að snúa að menntun í samhengi þessara greina.
Til þess að slíkur stuðningur skili sér með góðu móti verður að vera gott regluverk í kringum það, en þá þarf einmitt ríkisstjórn sem hefur skýra framtíðarsýn, sem ég hef saknað hjá bæði þessari ríkisstjórn og þeirri síðustu. Það er ekki nógu mikið lagt upp úr því að það sé raunverulega stutt við skapandi greinar.
Mér dettur í hug fernt sem væri hægt að hafa sem grunn:
1. Að styðja við það sem fólk vill gera, ekki það sem ríkið og stjórnvöld vilja að fólk geri.
2. Að vinna með tækniframförum hvers tíma, en ekki á móti þeim.
3. Að taka tillit til raunveruleikans og reyna ekki að búa til regluverk sem lítur vel út á blaði en er haldlaust í raunveruleikanum.
4. Að líta á fjölbreytt rekstrarform og fjölbreytni í fjármögnun skapandi greina sem tækifæri en ekki ógn.
Það hefur sýnt sig að skapandi greinar eru gríðarlega mikilvægar fyrir öll samfélög í nútímanum. Við verðum að sinna vel skapandi greinum ef við eigum að hafa áframhaldandi velgengni á Íslandi á þeim sviðum.