framtíðarsýn fyrir skapandi greinar.
Frú forseti. Ég ætla að biðjast afsökunar á því fyrir fram að ég mun tala svolítið hratt af því að mér liggur mikið á hjarta og vil koma upplýsingum á framfæri sem ég hef legið yfir síðustu daga.
Síðastliðnar vikur hefur mygla í húsakynnum LHÍ verið þó nokkuð í umræðunni þar sem nemendur hafa veikst illa í sumum tilfellum af völdum hennar. Það er fyrir neðan allar hellur að ungt fólk sem er í góðri trú í námi í því fagi sem það hefur e.t.v. brennandi áhuga á fái það hlutskipti, fyrir utan það að námið sjálft er dýrara en sambærilegt nám í öðrum háskólum og aðstaðan er bágborin hvað varðar þætti eins og aðstöðu, aðgang að tæknibúnaði o.s.frv., að húsnæðið sem þau eiga að læra fag sitt í valdi því að það veikist. Þetta fólk veikist innan menntastofnunar ríkisins vegna þeirra áralöngu niðurníðslu sem hún hefur þurft að þola. Ég mundi segja að þessi niðurníðsla tengist beint þeirri staðreynd að þessir málaflokkur heyri undir menntamálaráðuneytið, sem kemur svolítið inn á það sem hv. þm. Katrín Jakobsdóttir var að tala um. Þetta er alltaf olnbogabarn þarna undir.
Til að leggja áherslu á veruleikann sem snýr að nemendum og fagaðilum í þessu fagi langar mig, með leyfi forseta, að lesa upp úr ræðu Fríðu Bjarkar Ingvarsdóttur, rektors Listaháskóla Íslands, sem hún hélt við útskriftarathöfn LHÍ síðastliðið sumar:
„Þrátt fyrir óumdeild sannindi um vægi listsköpunar sem og varðveislu og framsetningu menningararfleifðar á hún mjög undir högg að sækja hér á landi. Listir njóta ekki sannmælis, ekki sem skapandi vísindi, ekki sem fræðasvið og ekki sem atvinnugrein eða forsenda nýsköpunar.“
Er ég búin með tímann? (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja hæstv. menntamálaráðherra: Hvenær á að laga húsakost Listaháskóla Íslands? Það er nauðsynlegt að gera það strax.