aðgangsstýring í ferðaþjónustu.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka málshefjanda þessa góðu umræðu sem seint verður tæmd, eins og sýndi sig í sérstökum umræðum tengdum þessum málaflokki í síðasta mánuði. Fangnaðarefni er að sérstök skrifstofa ferðamála hefur verið sett á fót þar sem fimm manns munu einbeita sér að málaflokknum. Nú þegar málaflokkurinn hefur verið á hendi Sjálfstæðisflokksins í á fimmta ár er eðlilegt að kallað sé eftir framkvæmdum og aðgerðum, aðkallandi aðgerðum sem snúa m.a. að því að við göngum ekki of nærri okkar viðkvæma landi.
Eins og margoft hefur komið fram hefur ferðamönnum fjölgað mikið á Íslandi og menn láta jafnvel sem svo að Ísland sé að verða uppselt. Það tel ég ekki vera því að þótt við þverfótum vart fyrir okkar ágætu ferðamönnum í miðbæ Reykjavíkur og þeir fylli hótel og gistirými á ákveðnum stöðum um landið eru þeir ekki fyrirferðarmiklir alls staðar.
Þessi nýja stoð í efnahagskerfi okkar þarf að styrkja fleiri samfélög en nú er. Stýringin þarf að vera markviss og byggð á sjálfbærni.
Ég vil því beina nokkrum spurningum til ráðherra: Finnst ráðherra fýsileg sú tilhugsun að rukka ferðamenn á mörgum stöðum? Eigum við að hafa skúra við fjölda bílastæða og rukka? Hvernig sér ráðherra hlut sveitarfélaga í uppbyggingu og dreifingu ferðamanna?
Svo er það líka stóra spurningin: Viljum við endilega fleiri ferðamenn? Í samanburði við aðrar þjóðir eigum við að geta það. En viljum við það? Ef þeir eiga að komast um landið þá þurfum við að bæta vegakerfið. Það gengur ekki svo glatt hjá okkur núna. Ferðaþjónustan segir okkur að aukning tekna á síðasta ári umfram árið þar á undan séu um 20 milljarðar. Getum við notað það beint inn í flokkinn til vegagerðar t.d.? Hvaða áhrif telur ráðherra að bágborið samgöngukerfi hafi á dreifingu ferðamanna um landið? Ferðamannalandið Ísland verður að vera land sem við viljum búa í.