146. löggjafarþing — 42. fundur,  9. mars 2017.

fríverslunarsamningar.

[15:07]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa sérstöku umræðu og ég vonast til að hún verði bara byrjunin á þeirri umræðu sem við þurfum að taka um þau mál á þessum vettvangi.

Á örfáum árum hefur fríverslun í heiminum gerbreyst. Sem dæmi um það er kínversk millistétt, sem er með vestrænan kaupmátt og neysluvenjur, orðin fjölmennari en allir Bandaríkjamenn til samans. Indverjar eru á sömu vegferð. Það gefur augaleið að ef útflutningsdrifið hagkerfi eins og okkar á að dafna í harðri hnattrænni samkeppni verðum við að vera einu skrefi á undan öðrum. Staðan er einföld: Við eigum allt undir frjálsum og hindrunarlausum viðskiptum. Við getum ekki leyft okkur að slaka á kröfum. Stjórnvöld hvers tíma verða ávallt að vera á tánum, í stöðugu samráði við útflutningsgreinarnar, vera framsýn og virkja þau úrræði sem okkur standa til boða. Þetta á að sjálfsögðu við um íslenska neytendur sem verða varir við hindrunarleysi í fríverslun með afnámi tolla, auknu vöruúrvali, lægra vöruverði.

Velmegun okkar byggist á aðgengi að erlendum mörkuðum. Að sama skapi er framþróun fátækra ríkja heims fólgin í því að við hin opnum markaði okkar. Þetta er kjarni fríverslunar. Það er afar brýnt að Ísland sé vel vakandi yfir þeim áskorunum sem uppi eru og búi við sveigjanleika og snerpu til að grípa þau tækifæri sem gefast til að auka markaðshlutdeild íslensks útflutnings í harðri hnattrænni samkeppni. Við erum í kjörstöðu og í fararbroddi þegar kemur að fríverslun. Horfum á staðreyndirnar. Íslensk tollskrá inniheldur 8.601 tollnúmer. Frá upphafi þess árs var tollfrelsi á 7.700 númerum sem þýðir í raun að 90% tollfrelsi ríki í landinu. Þar til viðbótar er tollfrelsi á vissum hefðbundnum landbúnaðarvörum samkvæmt fríverslunarsamningum. Það er varla hægt að tala um tollmúra í samhengi við viðskiptastefnu Íslands heldur er hér opið og hindrunarlaust hagkerfi. Það sem eftir stendur eru einstakar tegundir af því sem við köllum hefðbundnar landbúnaðarvörur. Þessar staðreyndir tala sínu máli. Það stendur ekki á okkur þegar kemur að hindrunarlausum heimsviðskiptum.

Ísland stendur vel að vígi þegar kemur að þessum málum og við erum í öfundsverðri stöðu. Við erum með okkar eigin viðskiptastefnu og erum ekki rígbundin öðrum ríkjum þegar kemur að markaðssókn fyrir íslenska hagsmuni. Aðild okkar að EFTA hefur verið og mun áfram vera hryggjarstykkið í fríverslunarmálum okkar, enda hafa EFTA-ríkin sótt fram af miklum krafti á síðustu árum og víkkað og dýpkað fríverslunarnet sitt verulega með samningi við alls 38 ríki. Á vettvangi EFTA standa til að mynda yfir fríverslunarviðræður við afar mikilvæg ríki eins og Indland, Víetnam, Indónesíu og Malasíu og viðræður eru að hefjast við Mercosur-bandalagið sem Brasilía, Argentína, Úrúgvæ og Paragvæ eiga aðild að.

Í þeim tilvikum þegar ekki eru möguleikar til að gera samninga á vettvangi EFTA hefur að hálfu íslenskra stjórnvalda verið leitast við að tryggja hagsmuni íslensks atvinnulífs með gerð tvíhliða fríverslunarsamninga Íslands við einstök ríki, eins og t.d. við Stóra-Kína og við vini okkar Færeyinga.

Ég vil í því samhengi nefna skýrslu sem EFTA-skrifstofan vann á síðasta ári að minni beiðni sem þáverandi formanns þingmannanefndar EFTA um þróun viðskipta EFTA-ríkjanna við ríki sem þau hafa gert fríverslunarsamninga við. Í skýrslunni kemur fram að útflutningur frá Íslandi til Kanada hefur meira en tvöfaldast á viðmiðunartímabilinu fyrir og eftir gerð fríverslunarsamnings. Útflutningur til Chile tífaldaðist eftir gerð slíks samnings, aukning á útflutningi til Suður-Kóreu nam 30% og útflutningur til Singapúr fjórfaldaðist. Hvað varðar aðra fríverslunarsamninga EFTA-ríkjanna gáfu útflutningstölur heilt yfir til kynna verulega aukningu í samanlögðum útflutningi frá EFTA-ríkjunum til viðkomandi ríkja.

Hv. fyrirspyrjandi vék í ræðu sinni að samningi við Kína. Vöruviðskipti Íslands og Kína hafa aukist um 20% við gerð fríverslunarsamningsins, en heildarvöruviðskiptin námu tæpum 62 milljörðum í fyrra samanborið við 51 milljarð árið 2014.

Það er mikilsvert að meta að þetta sneri ekki bara að útflutningi heldur hefur þetta líka skilað sér til neytenda í lægra vöruverði á fatnaði, skóm, raftækjum og annars konar varningi sem framleiddur er í Kína og fluttur hingað til lands. Netverslun við Kína hefur sömuleiðis aukist gífurlega.

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður nefndi þau stórpólitísku tíðindi þegar breska þjóðin ákvað að ganga úr ESB. Brexit hefur losað mikla krafta úr læðingi og það er okkar hlutverk að fanga þá krafta og vera áfram í fararbroddi þegar kemur að fríverslun. Bretar vilja losna við þær viðjar sem sameiginleg viðskiptastefna ESB skapar og vill breska ríkisstjórnin skapa sér sveigjanleika til að geta sinnt alþjóðlegri hagsmunagæslu á eigin forsendum.

Verkefni íslenskra stjórnvalda er augljóst. Það er að tryggja a.m.k. óbreyttan aðgang að breska markaðnum í kjölfar útgöngu Breta, og helst betri, og jafnframt að tryggja réttindi íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru eða starfa í Bretlandi.

Það eru nokkrar sviðsmyndir á borðinu sem unnið er eftir og í þessari viku má segja að Bretar sjálfir hafi opnað á enn eina sviðsmyndina, sem ég fagna, og það er endurkoma Bretlands í EFTA. Það var bresk þingnefnd sem gerði tillögu sína í ítarlegri skýrslu sem birt var síðastliðinn þriðjudag. (Forseti hringir.)

Það er markvert, virðulegi forseti, að það eru aðeins örfá Evrópuríkja sem setja fríverslun efst í forgangsröðunina um þessar mundir og bæði Íslendingar og Bretar eru þar á meðal. Við þurfum að fylgja því eftir með gerðum og það munum við gera.