146. löggjafarþing — 42. fundur,  9. mars 2017.

fríverslunarsamningar.

[15:22]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það var ekki síst með baráttu jafnaðarmanna í viðreisnarstjórninni fyrir afnámi hafta, opnari samskipti við umheiminn, gerð fríverslunarsamninga og inngöngu í EFTA að hagur landsins og almennings fór verulega batnandi. Það var reyndar önnur og frjálslyndari viðreisn en sem samdi frá okkur möguleika á opnari samskiptum við umheiminn í nýjum stjórnarsáttmála í byrjun ársins.

Opin og góð samskipti þvert á landamæri er ekki eingöngu skynsamleg leið heldur góð til að ná árangri í fjölþættum sameiginlegum verkefnum mannkynsins. Ég nefni baráttu fyrir jafnrétti, gegn fátækt og hlýnun jarðar. Þá skipta frjáls milliríkjaviðskipti gríðarlegu máli, ekki eingöngu fyrir efnahag landsins og þar með almenning, heldur líka til að aðstoða þróunarlönd og jafna stöðu allra íbúa heimsins. Meiri jöfnuður allra jarðarbúa er líklegasta leiðin til að stuðla að lýðræðisþróun og friði í heiminum.

Mikilvægast í fríverslunarsamningum Íslands er EES-samningurinn. Með honum tryggjum við aðgengi að innri markaði Evrópusambandsins og á árinu 2015 fór yfir 70% af útflutningi okkar þangað.

EES-samningurinn tryggir okkur þó ekki fullan aðgang. Með aðild að ESB mundum við fá fellda niður tolla af sjávarafurðum að fullu sem gæfi aukin útflutningstækifæri á fullunnum afurðum og afurðum sem myndi skilja eftir mikil verðmæti hér á landi.

Ég hvet hæstv. utanríkisráðherra til að beita sér fyrir gerð fleiri fríverslunarsamninga og vera í góðum samskiptum við önnur EFTA-ríki um þau málefni. Þar horfi ég jafnt til Bretlands og þróunarlanda. Það er mikilvægt að hæstv. utanríkisráðherra leggi þar áherslu á að halda áfram að útvíkka fríverslunarsamningana og þeir verði að taka í auknum mæli til annarra þátta en bara tollalækkana. Þeir þurfa að kveða á um réttindi launafólks, liðka fyrir þjónustuviðskiptum og hvetja til umhverfisverndar og taka ekki síst á verndun hugverkaréttinda.