146. löggjafarþing — 44. fundur,  20. mars 2017.

varamenn taka þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá 3. þm. Norðvest., Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, og 4. þm. Suðurk., Smára McCarthy, um að þau geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þau Bjarni Jónsson og Oktavía Hrund Jónsdóttir.

Kjörbréf þeirra Bjarna Jónssonar og Oktavíu Hrundar Jónsdóttur hafa þegar verið rannsökuð og samþykkt, en þau hafa ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

[Bjarni Jónsson, 3. þm. Norðvest., og Oktavía Hrund Jónsdóttir, 4. þm. Suðurk., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.]