146. löggjafarþing — 44. fundur,  20. mars 2017.

sala Arion banka.

[15:03]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Frú forseti. Þau tíðindi bárust í gær að erlendir vogunarsjóðir hygðust kaupa hlut í Arion banka af Kaupþingi. Þar liggur fyrir að enginn hlutur fer yfir 9,99%, en hluturinn þarf að vera 10% til að teljast virkur eignarhlutur. Þar með gilda allstrangar reglur um að Fjármálaeftirlitinu beri að meta hæfi viðkomandi eiganda til þess að eiga og reka viðskiptabanka. Það er því væntanlega ekki tilviljun að eignarhluturinn miðast við þessa tölu, 9,99%. Þá vekur líka athygli í ljósi þess að í samningum um stöðuleikaframlög var miðað við að sá hlutur, bókfært virði hans, miðaðist við krónu á móti krónu. Verðið núna virðist vera í kringum 0,8 og jafnvel aðeins undir því, jafnvel 0,79, en ef miðað er við 0,8 getur ríkið stigið inn og nýtt sér forkaupsrétt sinn. Samkvæmt frétt í Kjarnanum, sem birtist nú í dag, telja þeir að þetta gengi sé 0,79 en muni verða hærra ef viðkomandi aðilar nýti sér viðbótarkauprétt. Í þriðja lagi liggur ekkert fyrir um endanlega eigendur.

Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra er í fyrsta lagi: Telur hann ekki rétt að meta þá aðila sameiginlega sem eru að kaupa hlut sem nemur allt að 30%, sem virðast vera að vinna saman? Er ekki rétt að meta hæfi þeirra sameiginlega þrátt fyrir að enginn eigi hlut yfir 10%?

Er fjármálaráðuneytið búið að fara yfir gengið sem hluturinn fer á? Er það yfir 0,8 og gæti ríkið þannig nýtt sér forkaupsrétt sinn? (Forseti hringir.) Hvað hyggst ráðherra gera til þess að upplýsa um endanlegt eignarhald á þeim hlutum sem keyptir hafa verið?