146. löggjafarþing — 44. fundur,  20. mars 2017.

tjáningarfrelsi.

[15:33]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu máli sem upp kom um síðustu helgi, þ.e. nýfallinn dómur Mannréttindadómstóls Evrópu, og varðar tjáningarfrelsi.

Hv. þingmaður leggur kannski aðra merkingu í þau orð sem höfð voru eftir mér um að ég teldi málið ekki beint vandræðalegt sem slíkt. Ég tel mjög mikilvægt að menn hafi alltaf á hverjum tíma tækifæri til að bera mál sín undir dómstóla. Það á ekki að líta á það sem neitt vandræðalegt að tapa máli fyrir dómstólum, í þessu tilfelli vandræðalegt fyrir ríkið, ekki frekar en fyrir sækjendur í þessu máli sem ekki fengu öllum sínum kröfum framgengt og ekki var fallist á allar kröfur þeirra í málinu. Það er heldur ekki vandræðalegt fyrir þá í þessum málum sem um ræðir, þ.e. þessi núna fimm mál sem mannréttindadómstóllinn hefur fjallað um og varða tjáningarfrelsisákvæði.

Þau mál sem mannréttindadómstóllinn hefur fjallað um eru hins vegar ekki alls kostar sambærileg ef maður skoðar þau aftur í tímann. Ráðuneytið hafði skoðað þessi mál áður en dómurinn féll og sent skýrslu til Evrópuráðsins um aðgerðir hér. Þá var það mat á þeim tíma, þegar sú skýrsla var send Evrópuráðinu, að ekki væri tilefni til frekari lagabreytinga en höfðu þá þegar verið gerðar.

Ég vek athygli á því að lagabreytingar hafa farið fram, t.d. á lögum um prentrétt og breytingar á lögum um fjölmiðla. Nokkrar lagabreytingar hafa verið gerðar til þess einmitt að koma til móts við sjónarmið sem hafa verið viðruð og reifuð við mannréttindadómstólinn, m.a. um ábyrgð ritstjóra og þeirra sem skrifa fréttir. Það er ekki útilokað að menn vilji gera frekari lagabreytingar, t.d. bara afnema með öllu löggjöf um ærumeiðingar. Það er auðvitað alveg sjónarmið. Það væri áhugavert að heyra (Forseti hringir.) sjónarmið þingsins, það er löggjafinn sem hefur allt um þetta að segja. En dómar almennt dæma auðvitað ekki eftir öðru en lögum.