tjáningarfrelsi.
Virðulegur forseti. Ég get bara sagt það að vonandi finnst dómsmálaráðherra á hverjum tíma ekkert óeðlilegt við það að menn reki mál sín fyrir dómi. En hvað varðar næstu skref í þessu máli get ég látið þess getið hér að ég sendi reyndar áður en þessi dómur var kveðinn upp dómstólaráði bréf þar sem reifað er og minnt á fyrri dóma sem hafa fallið í þessum málum. Ég hef lagt upp með að kanna hvort það sé eitthvert tilefni til þess fyrir dómstólana sjálfa að huga að framkvæmd við uppkvaðningu dóma, m.a. með því að þétta betur rökstuðninginn fyrir dómum. Gleymum því ekki að í þessum nýjasta dómi Mannréttindadómstólsins var ekki fundið í sjálfu sér að löggjöfinni eða lagastoðinni undir dómnum heldur var fundið að því að dómur Hæstaréttar hefði ekki verið nægilega rökstuddur um þá takmörkun sem dómurinn felldi niður. Það kann þá að vera að löggjafinn vilji (Forseti hringir.) þétta líka lagastoðina með því að tilgreina frekar í hvaða tilvikum hægt er að takmarka tjáningarfrelsið, standi hugur manna til þess.