146. löggjafarþing — 44. fundur,  20. mars 2017.

áherslur í skipulagi haf- og strandsvæða.

[16:06]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu. Skipulagsmál eru eitt mikilvægasta stjórntæki hverrar sveitarstjórnar. Ég ber miklar taugar til þeirra sem gamall bæjarstjóri. Svæðisskipulag, aðal- og deiliskipulag, endurspeglar vilja hvers samfélags um landnotkun, framtíðarsýn og framtíðarþróun hvers svæðis. Forræði sveitarstjórna á skipulagsmálum tryggir lýðræðislega meðferð skipulagsáætlana og landnotkunar fyrir atvinnulíf og samfélag. Netlög miðuð við 115 metra frá stórstraumsfjöru eru barn síns tíma. Við ættum að færa þá línu út til nútímans þegar stórfelld atvinnustarfsemi fer fram skammt undan landi í fjörðum og flóum. Atvinnustarfsemi eins og fiskeldi, ferðaþjónusta og jafnvel rafmagnsframleiðsla sem á eftir að ryðja sér til rúms við strendur Íslands í fjörðum og röstum á dýpi utan stranda eru ónýtt tækifæri sem munu koma á næstu árum.

Virðulegi forseti. Það er því áríðandi að í framtíðinni verði lögð aukin áhersla á fjölbreytta nýtingu í skipulagi haf- og strandsvæða sem byggir á heildarsýn, vistkerfisnálgun, náttúruvernd og sjálfbærri þróun og nýtingu. Það er því ekki hægt að líta fram hjá því að besta þekkingin á þeim möguleika sem felst í umhverfinu er hjá sveitarstjórnum og fólkinu sem býr í samfélögunum. Það verður ekki litið fram hjá þekkingu og reynslu íbúa og samfélaga þegar við fjöllum um hvernig skipulagsmálum fyrir haf- og strandsvæði verður háttað. Sveitarstjórnarstigið er hinn lýðræðislegi grunnur þar sem skipulag og gjaldtaka mannvirkja á haf- og strandsvæðum er ákveðin, að mínu mati. Hér er sannarlega brýnt mál á ferðinni sem krefst umræðu sem leiðir okkur að betri lausn.