áherslur í skipulagi haf- og strandsvæða.
Virðulegi forseti. Takk fyrir, allir hv. þingmenn, og auðvitað málshefjandi, fyrir góða umræðu. Hér vegast á sjónarmið um sveitarfélögin og þá væntanlegu atvinnuuppbyggingu sem verða mun, og jafnframt það að við fjöllum hér um almenning. Við erum ekki að tala um það sem nú heyrir undir skipulag sveitarfélaga, en margir mæla fyrir því að við útvíkkum skipulagið til almennings. Ég verð að segja að mér finnst það ekki sérstaklega góð hugmynd. Mér finnst að þetta eigi að vera, eins og lagt er upp með í frumvarpsdrögunum, sameiginleg ákvarðanataka, að ríki og sveitarfélög komi að þessu máli saman. Þarna er meira að segja verið að rétta ekki bara litlaputta heldur heila hönd. Þarna er ríkið að segja: Komið, tökum þessa samræðu í gegnum svæðisráðin, svo skulum við komast að góðri niðurstöðu saman. Hægt hefði verið að fara þá leið að segja: Þetta kemur ykkur ekkert við, við ætlum bara að setja þetta svona fram, ríkið. En það var ekki það sem við stefndum að.
Svo vilja kannski allir taka alla höndina. Ég er treg til. Mér finnast þessir hagsmunir vera almannahagsmunir. Eins og fram kom í máli margra þingmanna er náttúruverndin þarna mjög mikilvæg, lífríki og vistgerðir. Við þurfum að passa upp á að sú rödd og þeir hagsmunir séu í hávegum hafðir. Það gerist þegar við tölum um þetta saman og gerum þetta í sameiningu.
Þannig að nei, ég mæli ekki með því að skipulagsvald sveitarfélaga sé víkkað. Það þarfnast mun meiri umræðu. (Forseti hringir.) Við munum halda áfram að ræða þessi mál hér, vænti ég.