nám í hjúkrunarfræði.
Hæstv. forseti. Í nýútkominni skýrslu um vinnumarkað hjúkrunarfræðinga sem unnin var af Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga kemur fram að alls vanti 290 hjúkrunarfræðinga til starfa til að manna fjármögnun stöðugilda hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum á Íslandi. Samkvæmt mati framkvæmdastjóra hjúkrunar og hjúkrunarforstjóra vantar hins vegar 523 hjúkrunarfræðinga til starfa samkvæmt áætlaðri þörf. Í fréttatilkynningu sem kom frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að samkvæmt greiningu á vinnumarkaði hjúkrunarfræðinga séu einungis 69% þeirra félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og starfa um þúsund hjúkrunarfræðingar við annað en hjúkrun. Þá kemur fram í fréttatilkynningunni að brottfall nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga úr starfi sé að meðaltali 15% á undanförnum fimm árum og launamunur á hjúkrunarfræðingum og öðrum stéttum með sambærilega menntun og ábyrgð í starfi hjá hinu opinbera sé 20%. Algengustu byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga eru 359 þús. kr. fyrir fullt starf og meðaltalsdagvinnulaun hjúkrunarfræðinga eru því 526 þús. kr.
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir jafnframt að til að tryggja næga mönnun í hjúkrun og þar með öryggi sjúklinga og til að draga úr dánarlíkum þeirra sé nauðsynlegt að gripið verði til aðgerða hjá hinu opinbera og á heilbrigðisstofnunum. Í nýjustu fréttum sem ég fann á vef Háskóla Íslands, það eru reyndar tölur frá 2015 og jafnvel hefur hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra aðrar og nýrri tölur, kemur fram að fyrir haustið 2015 uppfylltu 157 umsækjendur inntökuskilyrði í hjúkrunarfræðideild. Samkvæmt fjöldatakmörkunum í grunnnám í hjúkrunarfræði eru 100 nemendur teknir inn en fjöldinn miðast við afkastagetu sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana varðandi verklega þjálfun stúdenta.
Inntökureglur kveða á um að ef tveir eða fleiri nemendur eru jafnir í síðasta sæti að teknu tilliti til fjöldatakmörkunar öðlist báðir jafnan rétt til náms. Því var það þannig þegar þessir 157 umsækjendur uppfylltu inntökuskilyrðin að 105 komust að, þó sóttu 180 nemendur um námið á þeim tíma.
Mig langar að spyrja hæstv. menntamálaráðherra hvort hann ætli að beita sér fyrir auknu fjármagni til námsbrauta í hjúkrunarfræði til að koma á móts við skort á hjúkrunarfræðingum og hvernig hann ætli sér að bregðast við því brottfalli sem er úr námi í hjúkrunarfræði.
Einnig langar mig að spyrja hvort hann muni beita sér fyrir því að fjölga verknámsplássum fyrir hjúkrunarfræðinema innan heilbrigðisstofnana og þá hvernig.