breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína framsögu. Ég hef áhuga á því að heyra skoðun hans á nokkrum helstu röksemdafærslum fyrir tillögunni sem fram koma í greinargerðinni sem hljóða á þann veg að með þessu sé verið að skerpa hina pólitísku forystu í málaflokkum sem undir hvort ráðuneytið falla og að með því að skipta ráðuneytinu að nýju upp í tvö ráðuneyti megi tryggja markvissari forystu í málaflokkum hvors ráðuneytis um sig. Ég hef áhuga á því að vita hvort hv. þingmaður fallist á þessa röksemdafærslu og hvort hann telji að þingsályktunartillagan muni gera það að verkum að hin pólitíska forysta í málaflokkum sem heyra undir ráðuneytið muni skerpast með þessu. Er hv. þingmaður sammála þeim röksemdafærslum sem þarna koma fram fyrir uppskiptingunni?