146. löggjafarþing — 46. fundur,  22. mars 2017.

umferðarlög.

307. mál
[18:04]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Mig langaði að koma hingað upp og lýsa yfir ánægju minni með frumvarpið, að hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hafi lagt það fram. Þetta er mikil áskorun sem við er að eiga í ferðaþjónustunni.

Ég vil minnast á nokkrar tölu úr skýrslu Rögnvaldar Guðmundssonar sem hann vann sem greinargerð fyrir rannsóknarsjóð Vegagerðarinnar og kom út núna í febrúar. Hún heitir Akstur og öryggi. Þar bendir hann á að árið 2009 ferðuðust um 166.000 erlendir ferðamenn í bílaleigubílum, 33% af heildinni, árið 2014 voru þeir orðnir 480.000, eða 48% af heildinni, og á síðasta ári nýttu 960.000 erlendir ferðamenn, eða um 56% þeirra, bílaleigubíla á ferðalögum sínum um landið. Það verkefni sem þarna er við að eiga hefur þanist út á örfáum árum. Frá 2009–2016 hefur þessi umferð sexfaldast. Þannig að þetta er mikil áskorun.

Hér á landi og á hinu háa Alþingi hefur verið mikil umræða um þessi mál. Það var tekin umræða um náttúrupassa, komugjöld, fyrir tveimur árum eða svo. Þetta er þróun í því ferli, kannski fyrsta skref, en vonandi þróast það áfram á næstu árum hvernig við ætlum að taka á þessu. Verkefnið er gríðarstórt.

Við skulum líta á þetta sem þjónustugjöld. Þetta er ekki skattur. Það á að verja því fé sem kemur inn, þessum þjónustugjöldum, í uppbyggingu á þessum bílastæðum og áfangastöðum í ferðaþjónustu. Mér finnst þetta satt að segja stórt skref miðað við það hvernig þessu hefur verið háttað hjá okkur undanfarin ár. Þetta er skref sem þurfti að stíga, mögulega er þetta fyrsta skref. Það voru stigin ákveðin skref í þjóðgarðinum á Þingvöllum í fyrra. Ef ég man þetta rétt, það slokknaði nú á tölvunni hjá mér áðan, var talað um 70 milljónir á fyrstu sjö mánuðunum í bílastæðagjöldin við Hakið, þjónustugjöldin þar. Það er umtalsvert fé.

Það er líka talað um þróun á þessum þjónustugjöldum sem kemur þá mögulega að einhvers konar aðgangsstýringu. Þá er hægt að nýta þetta á ýmsa vegu eftir tíma sólarhringsins, til að hámarka nýtingu á bílastæðum og þjónustu. Með sama hætti og mér skilst að gert sé í Bláa lóninu í dag, verðlaginu er beitt sem aðgangsstýringu. Mér finnst þetta stórt og mikið skref og mjög ánægjulegt. Það er mikið framfaraskref að verið sé að brjóta ísinn í umræðunni um þessi mál.

Umræðan um náttúrupassann og þau mál gekk ekki alveg nógu vel á sínum tíma. Ég held reyndar að í dag yrði sú umræða tekin svolítið öðruvísi en var fyrir tveimur árum. Ég held að umræðan hafi þroskast töluvert á þeim tíma, á þessum tveimur árum, í kringum þessa hluti og dýptin kannski að verða meiri.

En ég vona svo sannarlega að við höldum áfram á þessari braut og að þetta séu fyrstu skrefin. Svo getum við hugsað þetta svolítið svona — mér kemur ekki í hug íslenska orðið sem ég ætlaði að nota, en ég sleppi því að nota það enska. Ég vona að þingheimur haldi áfram að vinna í þessum málum og komi áfram með góðar hugmyndir um það hvernig við eigum að taka á þessum málum. Þetta er eitt af þessum stóru verkefnum sem við þurfum virkilega að takast á við.

Ég er samt ósammála því sem kom fram hjá hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni áðan að mögulega séu upphæðirnar lágar eða sérstaklega litlar tekjur af þessu. Ég held að tekjurnar í Hakinu á Þingvöllum, í þjóðgarðinum, sýni ákveðna hluti. Við getum náð ákveðnum árangri því það er töluverður fjöldi af ferðamannastöðum vítt og breitt þar sem hægt væri að byggja upp góð bílastæði og aðstöðu fyrir ferðamennina í gegnum þessi þjónustugjöld. Ég held að þetta sé önnur leið að sama markmiði og talað var um með náttúrupassa eða komugjöld eða allar þessar sex mögulegu leiðir fyrir tveimur árum. En þetta er mikið framfaraskref, segi ég.