146. löggjafarþing — 47. fundur, 23. mars 2017.
mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Pírata um mannaskipti í alþjóðanefndum. Annars vegar þannig að Birgitta Jónsdóttir taki sæti Halldóru Mogensen sem aðalmaður í Alþjóðaþingmannasambandinu og Halldóra Mogensen taki sæti Birgittu Jónsdóttur sem varamaður í sömu nefnd. Hins vegar um að Halldóra Mogensen taki sæti Birgittu Jónsdóttur sem aðalmaður á þingi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu.