stefna stjórnarflokkanna um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem ég skal reyna að svara. Ég vil að vísu vera ósammála hv. þingmanni um að það séu tíðindi að ég segi að ég muni ekki standa fyrir sérstökum einkarekstri eða einkavæðingu á heilbrigðiskerfinu án þess að það séu stórkostlegar umræður eða undirbúningur undir slíkt því að þetta hef ég margoft sagt, m.a. hér úr þessum stól, og er einungis að ítreka þau orð mín.
Þegar ég ræddi undirbúning ákvörðunar minnar rétt áðan ræddi ég um niðurstöðu um það hverjum og hvaða stofnunum er falið að taka þátt í biðlistaátakinu í ár. Það er rétt að sú ákvörðun var vel undirbúin. Ég viðaði að mér gögnum og skoðuð var sérstaklega reynslan af biðlistaátakinu í fyrra, sem var upp og ofan vegna þess að það gekk framan af ekki mjög vel að framkvæma þann fjölda aðgerða sem til stóð og þurfti undir lok ársins að slá vel í klárinn, ef svo má orða það, til þess að ná þokkalega viðunandi niðurstöðu í málið. Þess vegna var það undirbúið og rætt við stofnanirnar og auðvitað fyrst og fremst þá sem höfðu unnið þær í fyrra, hvernig þeim litist á að getan væri til þess að klára þennan fjölda aðgerða í ár. Ég er fullvissaður um að það muni takast. Það hafi verið ákveðnir byrjunarörðugleikar, uppsetningarörðugleikar, í fyrra sem gerðu það að verkum að það tók lengri tíma en ella sem eigi ekki við núna. En það er líka ástæðan fyrir því að við munum fylgjast sérstaklega vel með því hvernig gengur í átakinu (Forseti hringir.) í ár frá mánuði til mánaðar.
Það er auðvitað (Forseti hringir.) ekki rétt að ekki verði gengið til samninga við einkaaðila (Forseti hringir.) í þessu átaki því að það stendur til að semja við einkaaðila um einhvern hluta af augnaðgerðum eins og var gert fyrir ári síðan.