146. löggjafarþing — 47. fundur,  23. mars 2017.

lax- og silungsveiði.

271. mál
[11:46]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði á þskj. 378, 271. mál. Þar er um að ræða tillögu um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði og tengist stjórn álaveiða.

Frumvarp þetta er samið í ráðuneyti atvinnuvega- og nýsköpunar. Það er að tilhlutan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Með þessu frumvarpi eru lagðar til tilteknar breytingar á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum. Lagt er til í frumvarpinu að lögfest verði ákvæði um að ráðherra geti með reglugerð sett reglur um álaveiðar, m.a. um að banna eða takmarka álaveiðar um allt land eða á tilteknum svæðum ef það er talið nauðsynlegt að mati Hafrannsóknastofnunar.

Tilefni þessa frumvarps er að með bréfi, dagsettu 24. nóvember 2015, óskaði Fiskistofa eftir því við ráðuneytið að það hlutaðist til um að álaveiðar yrðu bannaðar eða takmarkaðar á Íslandi og við landið. Þá barst ráðuneytinu einnig minnisblað frá Veiðimálastofnun um málið, dagsett 30. nóvember 2015, en eins og við vitum hafa Veiðimálastofnun og Hafrannsóknastofnun sameinast í nýja stofnun sem er Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna.

Einnig barst ráðuneytinu formleg ráðgjöf Veiðimálastofnunar um málið með bréfi dagsettu 3. febrúar 2016. Þar er gerð grein fyrir líffræði og lífsferli áls, álaveiðum hér á landi, ástandi stofnsins og ráðgjöf stofnunarinnar. Meðal annars kemur þar fram að álastofninn sé í hættu og þoli illa veiðar. Meðan svo sé sé það ráðgjöf Veiðimálastofnunar að bann verði sett á allar álaveiðar hér á landi. Stofnunin taldi þá nauðsynlegt að settar yrðu reglur um friðun áls hér á landi á meðan ástand stofnsins væri undir viðmiði og að ráðherra yrði veitt nauðsynleg lagaheimild til að setja slíkar reglur með breytingu á 20. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, og jafnframt að ef áll veiddist í silungs- eða laxveiði yrði skylt að sleppa honum. Veiðimálastofnun þáverandi lagði því til að ráðuneytið beitti sér fyrir slíkri alfriðun sem stæði á meðan ástand stofnsins væri undir settu viðmiði.

Umræddar tillögur um bann við álaveiðum eru að meginstefnu byggðar á því að mikil stofnstærðarminnkun hefur orðið á álastofninum, svo mikil að állinn hafi frá árinu 2009 verið á lista CITES-samningsins um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.

Eins og ég kom inn á hefur þetta frumvarp verið í ráðuneytinu til nokkurrar yfirferðar. Menn hafa farið að ráðgjöf þáverandi Veiðimálastofnunar og núverandi Hafró um að þessu verði fylgt eftir. Ég vek athygli á að í 1. gr. er í raun heimildarákvæði um að ráðherra geti sett reglur um álaveiðar í ljósi þess að sterkar vísbendingar eru um að álastofninn sé í hættu. Við tökum það að sjálfsögðu alvarlega. Við viljum hafa heimildarákvæði til staðar og fara síðan að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í samræmi við meginreglu íslenskrar fiskveiðistjórnar og stjórnunar okkar í veiðiám og vötnum, við viljum fara að því sem vísindin segja okkur að rétt sé að gera.

Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að ákvörðun um reglur sem ráðherra kann að setja með reglugerð um álaveiðar, m.a. um hvort banna eða takmarka skuli álaveiðar hér á landi, verði byggð á ráðgjöf frá hinni nýju stofnun sem við í daglegu tali köllum Hafró.

Virðulegi forseti. Ég vil að öðru leyti vísa til greinargerðar þeirrar sem fylgir frumvarpinu, en þar er ítarlega fjallað um og gerð grein fyrir efni þessa frumvarps.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar.