lax- og silungsveiði.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur fyrir athugasemdina. Ég tek undir með áhyggjur hv. þingmanns af plastmengun. Hún er töluverð. Það vill svo til að ég var á sjávarútvegssýningunni í Boston þar sem ég ræddi við öldungadeildarþingmann úr Demókrataflokknum frá austurströndinni sem er að fara að leggja fram frumvarp um plastmengun, sem er mikil t.d. í Alaska. Hann bað um stuðning okkar Íslendinga við frumvarpið. 80% af menguninni sem þar er kemur frá Asíu. Plastið fer yfir hafið og spillir mjög mikið fyrir.
Ég get ekki fullyrt um nákvæmar rannsóknir á því hvort þetta hafi áhrif á álastofninn sem slíkan, en það er vont að hafa þessa mengun í hafinu. Ég sagði við þingmanninn að við myndum að sjálfsögðu styðja allt sem þýddi hreinna haf, betra vistspor, sjálfbærar veiðar, vísindalegar veiðar, það myndum við Íslendingar styðja.
Já, það hafa átt sér stað óformlegar viðræður. Við fylgjumst mjög vel með í sjávarútvegs- og landbúnarráðuneytinu, meðal annars varðandi frumvarpið um verndun haflengjunnar eða strandlengjunnar. Þar eigum við náttúrlega mjög ríka hagsmuni. Þetta er risastórt hagsmunamál fyrir okkur og ég þakka hv. þingmanni að vekja athygli á því.
Ég vil líka vekja athygli á minni fyrirtækjum sem vinna í þessu. Ein af mínum fyrstu heimsóknum sem ráðherra var í fyrirtæki í Hveragerði. Þar er fyrirtæki sem endurnýtir plast í Hveragerði, rúlluplast, og tekur u.þ.b. tvö tonn, minnir mig, af plasti úr hafinu, netadræsur og fleira, sem menn endurnýta og setja meðal annars í endurnýtanlega plastpoka fyrir Bretlandsmarkað. (Forseti hringir.) Það er hægt að hreinsa þetta, það er hægt að gera betur. Það munum við Íslendingar svo sannarlega gera.