146. löggjafarþing — 47. fundur,  23. mars 2017.

lax- og silungsveiði.

271. mál
[12:02]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Það ber svo við að ég er staddur á Alþingi þegar þetta mál kemur hér til umfjöllunar. Ég hef rennt yfir frumvarpið og finnst ýmislegt um það og vil rekja það lauslega.

Fram kom hjá hæstv. ráðherra að hún vilji fara að vísindum og fara eftir ráðgjöf Hafró í þessu máli en ég hef efasemdir um að þar sé svo mikil þekking til staðar að það sé eingöngu á henni byggjandi. Kannski er þekkingin jafnvel enn ríkari og meiri utan þeirrar stofnunar. Það væri svo sem hægt að fara hér yfir lífsferil ála og stöðuna í Evrópu og stöðuna á Íslandi.

Það er rétt að álar eru taldir vera í útrýmingarhættu, það er fyrst og fremst vegna eyðileggingar búsvæða, ofveiða á glerál til notkunar í álaeldi, og sjúkdóma og sníkjudýra sem komið hafa upp vegna innflutnings til Evrópu frá Japan og víðar. Það hefur orðið til þess að glerálagöngurnar — glerállinn er ungviði ála, hann hrygnir í Saragossa-hafinu og síðan berast álalirfurnar hingað. Samkvæmt rannsóknum mínum eru þær sem koma til Íslands eitt ár á leiðinni hingað og alast hér upp og ganga síðan aftur sína leið til baka og hrygna og sjást ekki aftur.

Álaeldið hefur alfarið byggst á því að veiða glerál og ala hann áfram, en ekki hefur tekist fyrr en nýverið að ná árangri í að klekja út og láta það lifa til lengri tíma í eldi. Kílóið á glerálum er jafnvel að fara yfir 100 þús. kr., en það þarf reyndar 2.400 stykki í kílóið.

Hér höfum við sem betur fer ekki eyðilagt með sama hætti búsvæði og gert hefur verið á meginlandi Evrópu. Hér hefur ekki verið ofveiði á glerál. Ég held að hann hafi varla verið veiddur, annars þá helst af þeim sem hér stendur. Ég veit um fáa aðra, alla vega ekki vísindamenn, sem gert hafa slíkt.

Veiðar á glerálum — þetta eru nokkur hundruð kíló á ári og hefði kannski getað farið upp í einhver tonn og í sögulegu ljósi aðeins aftur í tímann, en þetta er tiltölulega lítið í dag. Það er engu að síður verið að nýta ál á nokkrum stöðum, og auðvitað skiptir það fólk máli. Ég hef fylgst nokkuð vel með því. Ég er búinn að vera að vakta álagöngur til Íslands síðan árið 1999, m.a. til þess að skoða samanburð milli ára í göngunum. Ég er með lykilstaði þar undir sem ég fylgist með árlega til þess að fá vísitölu á göngurnar og nýliðunina. Ég er sá eini sem hefur staðið í slíkum rannsóknum hér á Íslandi svo ég viti til.

Það er rétt að hér hafa dottið niður álagöngur. Það sást að glerálagöngur duttu talsvert niður hér við Ísland fyrir um áratug, en engu að síður ekki í sama mæli og annars staðar í Evrópu. Þær hafa kannski dottið niður í 10% af því sem það var áður, á meðan það fór niður í 1% í Evrópu. Síðastliðið vor gerðist það að það komu stærri göngur en sést hafa hér í áratug. Ég er spenntur að sjá hvernig þetta mun líta út núna í vor.

Síðan er þetta svolítið flóknara mál allt saman, því að þrátt fyrir að glerálagöngurnar hafi dottið niður hefur maður ekki séð samsvarandi minnkun í stofnstærð í vötnum og ám og þeim búsvæðum sem állinn byggir hér við Ísland. Þarna virðist líka koma inn að einhverju leyti þéttleikaháð dánartala og annað slíkt. Staðirnir sem ég hef verið að fylgjast með á hverju ári til þess að átta mig á stofnstærðinni — ég verð bara að halda áfram að tala út frá rannsóknum mínum hér fyrst það er svo aumlegt sem vitnað er til í þessu frumvarpi — en ég nefni til að mynda Vífilsstaðavatn sem ég fylgist með á hverju ári og hef gert í 20 ár. Þar hef ég aldrei séð jafn mikið í rannsóknum mínum og fyrir tveimur árum og víðar hefur stofnstærðin ekki dottið niður með sama hætti, sem er athyglisvert.

Álaveiðarnar eru það litlar við Ísland og það eru engar atvinnuveiðar á glerálnum við Ísland, sem er aðalhættan á meginlandi Evrópu. Hér höfum við ekki eyðilagt jafn mikið af búsvæðum og þar hefur verið gert. Auðvitað höfum við verið að eyðileggja hér búsvæði. Hér eru ræstar fram mýrar. Sett eru vegræsi og annað slíkt sem stöðvar göngur. Það er kannski það sem þarf sérstaklega að hyggja að heldur en bann við að veiða þessi nokkur hundruð kíló sem nú eru veidd. Ég held að það sem við gerum hér í nýtingunni á Íslandi skapi stofnunum ekki hættu.

Ég held ég verði líka að koma því að að álar á Íslandi eru á margan hátt sérstakir. Ein af ástæðunum fyrir því að hér hafi ekki verið veiddir glerálar í atvinnuskyni er einfaldlega sú að þeir hegða sér með allt öðrum hætti við Ísland. Það eru allt aðrar aðstæður hér. Þær hef ég verið að rannsaka og framkvæmt tilraunir til þess að leiða fram um það niðurstöður. Án þeirrar þekkingar geta menn ekki veitt þá í atvinnuskyni hér. Það hefur ekki verið um það að ræða. Við höfum alla vega í tvígang veitt glerál til þess að prófa okkur áfram í álaeldi, en ekki þó síðastliðin ár. Ég vil bara halda því til haga.

Varðandi sérstöðuna. Það er margt sérstakt sem fram kemur í frumvarpinu og er best að hafa engin orð um það. Vísað er í gögnin sem lögð eru til grundvallar; það er ein skýrsla frá 1996 þar sem veiddir voru álar í nokkrum vötnum og tjörnum á Suðurlandi, það eru 20 ár síðan. Svo er skýrsla þar sem gerð er grein fyrir því að veiddir voru tugir bjartála á leiðinni niður Elliðaárnar eitt haustið. Síðan eru bréf og ráðgjöf og annað slíkt þar sem fullyrt er um hlutina án þess að byggja einu sinni á þeim gögnum sem til eru. Ég get líka vísað til á annan tug vísindagreina í alþjóðlegum tímaritum þar sem fjallað er um álarannsóknir á Íslandi og genasamsetningu og fleira sem ég hef átt aðild að. Mér þykir merkilegt að sjá að menn hafi nánast ekki nýtt sér neitt af því sem þó hefur verið gert. En það vantar náttúrlega verulega upp á rannsóknir, það er alveg ljóst.

Við erum líka að skoða áhrif loftslagsbreytinga á genastrúktúrinn og fleira, samspilið þar á milli og dýnamíkina á milli landa. Á Íslandi erum við með kynblendinga Evrópu- og Ameríkuála, sem finnast hvergi annars staðar. Við erum líka með næstu kynslóðir þeirra hér sem finnast hvergi annars staðar, sem þýðir það að þarna er eitthvert mynstur. Sú staðreynd að þeir skuli ekki vera að veiðast annars staðar þýðir að það er ekki alveg tilviljanakennt hvert álarnir fara eða hvort þeir koma, alla vega afkvæmi þessara kynblendinga. Þau koma frekar til Íslands en á aðra staði. Það þarf að skoða það betur. Það eru ýmsar hliðar á því.

Ég er alveg sammála því að það ber að láta náttúruna njóta vafans og gæta ýtrustu varúðar. Það er svo ódýrt að segjast ætla að gera það en ætla þá ekki einu sinni að skoða hver staðan er.

Það svífur yfir vötnum við lestur á þessu plaggi að það á að fara að banna veiðarnar. Það þarf líka að sýna því fólki virðingu sem nýtir álinn, þó að þar séu ekki stórfelldir hagsmunir undir, að það sé a.m.k. farið yfir þá þekkingu og þau gögn sem til eru og jafnvel að ráðuneytið nýti sér helstu sérfræðinga á þessu sviði á landinu. Ef þá er ekki að finna á Hafrannsóknastofnun ætti að leita annað í því skyni. Ég hvet eindregið til þess. Meira að segja held ég að ráðuneytið hafi fengið einhverja greinargerð fyrir nokkrum árum síðan um stöðu álastofna á Íslandi og glerálagangna til þess að geta svarað varðandi skuldbindingar Íslands á alþjóðavísu um hvort þessar tegundir séu í útrýmingarhættu, það væri alla vega hægt að byrja á að finna það í bókasafni ráðuneytisins. Það álit skrifaði ég undir á sínum tíma.

Það hlýtur að skipta einhverju máli að hér hafa verið vaktaðar álagöngur frá 1999 til þessa dags og eins niðurstöðurnar úr þeirri vöktun þegar taka á ákvarðanir um álinn. Ég hvet ráðuneytið og þá þingnefnd sem fjalla mun um málið til þess að afla sér ýtrustu þekkingar og nýta sér hana.

Það er alla vega ljóst að það er ósköp lítill bakgrunnur á bak við rökstuðninginn hér, þó að ég skilji áhyggjurnar og deili þeim, enda eru margvíslegar rannsóknir í gangi sem snúa að þessum alvarlegu spurningum. Það er vandi að koma hér upp og tala um mál sem maður þekkir svo vel, en engu að síður hef ég ákveðið að gera það og ræða það út frá þekkingu minni á málinu.

Ég vil að endingu enn og aftur hvetja hæstv. ráðherra, ráðuneytið og þingnefndir til þess að leita sér þekkingar víðar þar sem hún er til um þetta mál. Það er hægt að fara yfir margt í þessum efnum. Það er margt mjög sérstakt hér á Íslandi sem er öðruvísi en við sjáum annars staðar. Það er mikilvægt að taka það til greina. Ef Ísland þarf að rökstyðja, segjum áframhaldandi veiðar á álum og hvernig að þeim er staðið, þarf að vera hægt að rökstyðja það með því hvernig hlutirnir eru hér. Það væri góð byrjun frekar en að fara ódýru leiðina og ákveða bara að banna þetta og ætla svo að fara að skoða málið eða sleppa því alveg.

Ég óska eftir því að hæstv. ráðherra bregðist við þeim hugleiðingum sem hér eru fram bornar.