lax- og silungsveiði.
Frú forseti. Ég vil undirstrika meðalhófsregluna enn og aftur. Ég vil líka undirstrika að þegar náttúran er annars vegar verðum við að taka hlutina alvarlega. Þá verðum við að leita eftir vísindalegum niðurstöðum, leita álits okkar besta fólks til þess að geta tekið ákvarðanir.
Ef það er svo, og það eru sterkar vísbendingar um það, að álastofninn sé í hættu getur að óbreyttu, eins og staðan er núna, ráðherra ekkert gert þrátt fyrir sterkar vísbendingar þar um. Þess vegna segi ég: Þetta er heimildarákvæði. Þetta er ekki skilyrðislaust ákvæði um bann við álaveiðum heldur heimildarákvæði sem snertir það að ráðherra geti með reglugerð sett reglur um álaveiðar, þannig að það sé sagt mjög skýrt. Ráðherra getur sett reglugerð um bann við veiðum á ál en gerir það ekki fortakslaust.
Ég tel þetta vera ábyrga leið, skynsamlega leið í þá veru að reyna að samræma sjónarmið, umhverfissjónarmið og verndunarsjónarmið annars vegar og svo þau sjónarmið sem eru mjög skýr og krefjast þess að lagaheimildir séu skýrar þegar verið er að banna eða takmarka veiðar í ám eða vötnum eins og hér er verið að gera.
Verið er að fara ákveðna millileið, skynsamlega leið. Heimildarákvæðið vantar. Ef það fæst ekki getum við ekkert gert ef fram koma skýrar niðurstöður um að álastofninn sé algerlega að hrynja hér við strendur.