lax- og silungsveiði.
Frú forseti. Ég vil undirstrika að ég treysti Hafrannsóknastofnun. Ég heyri m.a. þegar ég dvaldi fyrir vestan í nokkra daga, ákall eftir því að meira samráð væri haft af hálfu Hafró við sjómenn landsins, við þá sem nýta sér auðlindirnar hverju sinni. Ég held að Hafró taki því mjög alvarlega. Þar er reynt að hafa reglubundið samráð við þá sem eru á svæðinu, sem veiða og vinna. Það sama gildir að sjálfsögðu um álinn. Ég treysti Hafrannsóknastofnun algerlega til að veita mér sem ráðherra faglega ráðgjöf eins og hún gerir almennt í öllu öðru. Ég undirstrika að starfsemi Hafrannsóknastofnunar í gegnum tíðina hefur sýnt það og sannað. Við sjáum það t.d. núna á uppbyggingu á þorskstofninum og öðrum stofnum líka að bæði skilar sér sú stefna sem við höfum haft í fiskveiðistjórn og allt pólitíska litrófið hefur komið sér saman um að byggja upp, og það hvernig Hafró hefur unnið úr vísindum sínum.
Að öðru leyti, ef við tölum um að vera í tengslum við ál: Ég man mjög vel eftir því að ég fór iðulega niður að læk, Þorleifslæk í Ölfusi, og setti álagildrur með pabba. Þetta voru ekki skemmtilegustu skepnurnar sem maður fékk í gildrur en þær voru spennandi. Það var mun meira af þeim fyrir 300 árum en er núna í læknum. Og einnig þegar ég var tíu, tólf og fimmtán ára. Síðastliðið sumar fór ég sérstaklega niður að á og reyndi að skoða eitt og annað, en það var ekki mikið af ál á þessum gömlu stöðum sem við pabbi fórum á á sínum tíma og settum gildrurnar. Það kann að vera hending ein. En það er hins vegar gott að vita af álnum í íslenskri náttúru.