146. löggjafarþing — 47. fundur,  23. mars 2017.

stjórn fiskveiða.

176. mál
[14:40]
Horfa

Einar Brynjólfsson (P):

Virðulegur forseti. Mér er vandi á höndum að koma í pontu hér eftir þvílíka eldræðu sem hér var flutt. Það er alveg satt sem hv. þm. Gunnar Ingiberg Gunnarsson segir að það er alls engin sátt um sjávarútveginn. Forsvarsmönnum stjórnmálaflokka bárust nú um daginn þau boð frá sjávarútvegsráðherra að hún hygðist setja á fót starfshóp sem ætti að huga að framtíðarskipulagi í sjávarútvegi og var að falast eftir tilnefningum flokkanna í svoleiðis starfshóp. Því ber að fagna.

Þetta frumvarp sem hér liggur fyrir er skref í átt til sáttar. Það er umhverfisvænt og það stuðlar að eflingu hinna dreifðu byggða sem eiga mjög undir högg að sækja eins og ágætur hv. þingmaður benti á hér í upptalningu sinni á öllum þeim stöðum, öllum þeim plássum sem hafa orðið fyrir barðinu á þessu fiskveiðistjórnarkerfi sem við búum nú við sannar.

Ég mæli með því að þetta ágæta frumvarp hljóti framgang og vonast svo sannarlega til þess. Það væri íslenskri þjóð til sóma.