vextir og gengi krónunnar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið. Þetta er einn af þeim þáttum sem við þurfum að kanna varðandi þingsályktunartillöguna. Ástæða þess að við leggjum hana fram er að við teljum að vaxtastigið og það að reyna að hafa áhrif á verðbólgu með stýrivöxtum, með vaxtatækinu eingöngu, sé beintengt gengisstýringu. Við teljum að hugsanlega þurfi að velta fyrir sér í endurskoðaðri peningastefnu að bæta við fleiri þáttum þarna inn. En af því að vextirnir eru grunnástæða þess sem við sjáum birtast í efnahagslífinu er þetta einn þátturinn sem þarf sannarlega að skoða, ávöxtunarkrafa lífeyrissjóðanna. Ef við horfum til þess tíma frá upphafi lífeyrissjóðanna hafa þeir auðvitað ekki náð þessu 3,5% í kröfu. En það er spurning hvort krafan ein og sér valdi því að langtímavextir á Íslandi geti aldrei orðið lágir eða sambærilegir við löndin í kringum okkur, eins og við þurfum svo sannarlega til að viðhalda samkeppnishæfni, viðhalda velferðinni hér innan lands, til að búa ekki til gap á milli þeirra sem eiga peningana og þeirra sem taka þá að láni stundum á okurvöxtum.